Líflegt alls staðar þrátt fyrir skammvinnt kuldakast

Fallegur og vel haldinn birtingur úr Vatnsdalsá í vikunni. Myndin er frá FB síðu Vatnsdalsár.

Það er farið að hlýna aftur, en kólnaði fyrir skemmstu og þá datt vatnaveiðin dálítið niður. Kólnandi veður hefur samt minni áhrif á urriða/sjóbirting heldur en bleikju. Þannig að veiðin datt alls ekki alls staðar niður.

Stórfiskur úr Vatnsdalsá í vikunni.
Við heyrðum af góðum aflabrögðum við opnun Vatnsdalsár, þann 1.mai síðast liðinn, sem sagt síðasta mánudag. Þar, eins og svo víðar, hefur sjóbirtingur og staðbundinn urriði verið að negla svæðin niður á kostnað fækkandi sjóbleikju. Það þýðir kannski færri fiska, en stærri þar sem birtingurinn nær feikna stærð sé honum sleppt. Frá opnun silungasvæði Vatnsdalsár fengum við þessar fregnir: „Veiði hófst á silungasvæðinu nú í vikunni og fyrsta holl var búið að landa hátt í 80 fiskum á 6 stangir á 2 dögum , þrátt fyrir kulda. Hefðbundnar straumflugur voru að gefa , en Rektor frá Reiðu öndinni virtist gefa best samkvæmt þeim sem voru við veiðar. Spennandi tímar þarna framundan greinilega.“
Fallegur og vel haldinn birtingur úr Laxá í Kjós í vikunni. Myndin er fengin af FB síðu Laxár.
Sjóbirtingurinn er enn á svæðinu. Við höfum frétt af fínni veiði í Geirlandsá, Tungufljóti, Vatnamótum og Tungulæk. Og í Heiðarvatni, sem opnaði síðasta mánudag. Þar veiddist vel, m.a. tveir 90 cm birtingar. Menn voru meir að segja að setja í vænar bleikjur þar, mun fyrr á vertíð en vani er. Við verðum með nánari samantekt þaðan eftir helgina. En birtingurinn er víðar, t.d. í Laxá í Kjós, þar sem stutt vorveiðivertíð hefur verið afar góð. Þaðan komu þessi tíðindi:
„Aftur kominn kuldinn, en það breytir því ekki að veiðin er samt sem áður afar góð. Síðustu tvo daga (þriðjud-fimmtud) var 37 birtingum landað á stangirnar fjórar.“
En nú hlýnar aftur og þá ætti vatnaveiðin að taka nýjan kipp, fyrir utan að veiði glæðist þegar auðveldar er að standa úti og veiði….að kuldinn sé ekki að ganga frá mönnum!