Þetta er algerlega ásættanleg útkoma, 1305 laxar, í Haffjarðará sem þurfti að glíma við smálaxafæð og vatnsleysi líkt og aðrar ár á vestanverðu landinu. Það mætti til dæmis skoða þessa útkomu í samanburði við Norðurá. Mjög svipuð heildartala, en Haffjarðará með 6 skráðar stangir á móti 15 í Norðurá.

Dags. skráningarFjöldi laxaStangirLengd tímabilsVeiði sl. tímabilVeiði pr. stöng sl. tímabilVeiði pr. stöng pr. dag sl. tímabil
22.6.2016140
29.6.20163227182
6.7.20164726715025,03,6
13.7.2016565679315,52,2
20.7.20167046713923,23,3
27.7.20168206711619,32,8
3.8.2016907678714,52,1
10.8.201696467579,51,4
17.8.20161040677612,71,8
24.8.20161114677412,31,8
31.8.20161178676410,71,5
7.9.2016121867406,71,0
14.9.20161280676210,31,5
21.9.2016130567254,20,6

Vikutölurnar sýna að veiðin var glettilega jöfn yfir erfiðasta tímann, þegar leið á júlí og datt inn í ágúst og vatnið fór þverrandi. Ár eru þó mismunandi með tilliti til vatnsbúskapar og sumar halda sér betur en aðrar. Haffjarðará á nokkuð gott bakland í þeim efnum. Talsverður lax var í ánni, bæði smár og stór, en takan dræm um miðbik vertíðar.