Búist við síðbúnu yfirfalli

Hér er Jökla á góðum degi, óvíða gefur að líta fallegri laxveiðiá. Myndina á Nils Folmer Jörgensen.

Fyrr í sumar, áður en VoV varð tæknigalla að bráð um skeið, greindum við frá því að vatnsstaða í lónum Landsvirkjunar væri það lág (slök) að svokallað yfirfall myndi koma seinna og því spilla minna fyrir bæði í Jöklu og Blöndu. RUV var síðan með frétt algerlega nýverið sem staðfesti að staðan hefur ekkert breyst.

Þröstur Elliðason leigutaki Jöklu sagði okkur fyrr í sumar að aðeins einu sinni í sinni tíð hefði verið hægt að veiða út veiðitíman, Stundum hefur ástandið verið svo dapurt að veitt hefur verið aðeins fram í byrjun ágúst. Þetta hefur verið erfitt fyrir Þröst vegna þess að Jökla er öll virk frá því snemma sumars og sum svæði ofarlega í kerfinu eru ekki almennilega kortlögð vegna þess hversu snemma yfirfallið hefur komið. Blanda er betur þekkt stærð efra, en yfirfallið í hana samt sama fjandans ólánið og örðugt að reka laveiðiár án þess að vita hversu lengi  fram á síðsumarið og haustið að hægt er að selja veiðileyfi í ána. Kannski þetta blessun fyrir Blöndu sem er í sögulegri lægð um þessar mundir, Jökla hins vegar blómstrar og þegar yfirfallið hefur komið snemma hefur verið eins og að barnum sé lokað í partíinu þegar farið er að hitna í kolunum.

Brynjar Þór Hreggviðsson búinn að setja í vænan lax í Damminum. Myndir tók Höskuldur Birkir Erlingsson. Myndin er ekki ný.

Þröstur leigutaki sagði við VoV í vor að komin væri áætlun til að stemma stigu við snemmgengnu yfirfalli, það væri fólgið í því að styrkja göngur í hliðarárnar, Kaldá, Laá og Fossá, auk Fögruhlíðarár sem hefur þó sinn eigin ós út í Hérðasflóa. En svoleiðis aðgerðir kalla á tíma og þolinmæði, en svoleiðis áætlanir segja einnig að leigutakar eru að tjalda til langs tíma og eru ekki aðeins að hugsa um „short term“.

En sem sagt, í fyrsta skipti í mörg ár lítur út fyrir að alvöru síðsumars- og haustveiði verði gerleg í bæði Jöklu og Blöndu. Það eru frábær tíðindi.