Ytri Rangá var lang hæst yfir landið með tæplega tíu þúsund laxa, 9323 til að nákvæmni sé gætt. Þetta er mikil og sérstök laxveiðiá, tilbúin eins og margur myndi segja, en ekki verri fyrir það. En fyrir vikið er veiðitíminn lengri heldur en gengur og gerist enda er enginn hrygningarstofn sem þarf að vernda.
Ytri Rangá, ásamt Eystri Rangá, leikur stórt hlutverk í veiðileyfaframboðinu og má segja að þær veiti meiri tryggingar heldur en hinar svokölluðu sjálfbæru ár. Menn vita betur að hverju gengið er, því opinberlega liggja fyrir tölur um fjölda slepptra gönguseiða.
| Dags. skráningar | Fjöldi laxa | Stangir | Lengd tímabils | Veiði sl. tímabil | Veiði pr. stöng sl. tímabil | Veiði pr. stöng pr. dag sl. tímabil |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 29.6.2016 | 477 | |||||
| 6.7.2016 | 916 | 12 | 7 | 439 | 36,6 | 5,2 |
| 13.7.2016 | 1720 | 20 | 7 | 804 | 40,2 | 5,7 |
| 20.7.2016 | 2549 | 20 | 7 | 829 | 41,5 | 5,9 |
| 27.7.2016 | 3250 | 20 | 7 | 701 | 35,1 | 5,0 |
| 3.8.2016 | 4016 | 20 | 7 | 766 | 38,3 | 5,5 |
| 10.8.2016 | 4664 | 20 | 7 | 648 | 32,4 | 4,6 |
| 17.8.2016 | 5467 | 20 | 7 | 803 | 40,2 | 5,7 |
| 24.8.2016 | 5878 | 20 | 7 | 411 | 20,6 | 2,9 |
| 31.8.2016 | 6309 | 20 | 7 | 431 | 21,6 | 3,1 |
| 7.9.2016 | 7428 | 20 | 7 | 1119 | 56,0 | 8,0 |
| 14.9.2016 | 7966 | 20 | 7 | 538 | 26,9 | 3,8 |
| 21.9.2016 | 8379 | 20 | 7 | 413 | 20,7 | 3,0 |
| 28.9.2016 | 8722 | 20 | 7 | 343 | 17,2 | 2,5 |
| 5.10.2016 | 8935 | 20 | 7 | 213 | 10,7 | 1,5 |
| 12.10.2016 | 9126 | 20 | 7 | 191 | 9,6 | 1,4 |
| 19.10.2016 | 9275 | 20 | 7 | 149 | 7,5 | 1,1 |
| 23.10.2016 | 9323 | 20 | 4 | 48 | 2,4 | 0,6 |
Þetta var gott sumar í Ytri Rangá, með þeim bestu, og sérstaklega gladdi það veiðimenn hversu mikið var af stórlaxi í aflanum, en það átti raunar alls staðar við. Stórlaxinn í sókn, smálaxagöngurnar lakari, þannig að menn geta rétt ímyndað sér sumarveiðina ef smálaxagengdin hefði verið betri. Ytri Rangá er líka gott dæmi um að stangarfjöldi skiptir máli. Gefið er upp að veitt sé á tuttugu stangir á dag í ánni, en svæðin eru afar misgjöful og því er stór hluti veiðinnar að fást á mun færri stangir en tuttugu þó að ekki verði kafað dýpra ofan í það hér.










