Laxveiðin hefur almennt farið líflega af stað, en er þó víðast nokkru lakari en á sama tíma í fyrra. Það gerir að stórlaxagöngurnar komu snemma í fyrra og voru miklu sterkari en nú. Á móti vegur að smálax er að koma snemma. Hér kryfjum við ítarlega vikutölurnar…

Þverá/Kjarrá verma enn toppsætið með hæstu töluna, 656 laxa, en Urriðafoss í Þjórsá var með 365 laxa fyrir viku. Að þessu sinni vantar nýja tölu fyrir Urriðafoss þannig að við vitum ekki afstöðu hans gagnvart Þverá/Kjarr‘a, utan að eflaust er meðalveiði á stöng miklu meiri í Urriðafossi heldur en í Borgarfjarðarperlunni. Það fer alltaf allt eftir því hvaðan á hlutina er horft. Þverá/Kjarrá eru með góðar tölur, en þar er veitt á 14 stangir, einungis 2 stangir í Urriðafossi. Við skulum líta á statistíkina eftir síðustu veiðiviku, kryfja til mergjar og bera saman við sama tíma í fyrra. Yfirleitt er góður stígandi frá fyrri viku sem stafar af því að smálaxagöngur hafa færst í aukana, en lang flestar árnar eru samt nokkuð frá þeim tölum sem sjá mátti í fyrra. Nokkuð hefur borið á því að fussað sé og sveiað og talað um að allt tal um líflega laxveiði sé bull og vitleysa, ekki má gleyma tvennu í því sambandi. Í fyrsta lagi var byrjunin í fyrra  óhemju sterk og í annan stað þá hefur mest öll laxveiðin til þessa farið fram í júnímánuði og oft í gegnum árin hefur júní verið svona og svona og oft og iðulega arfa lélegur. Það eru t.d. ekki ýkja mörg ár síðan að fyrsti lax sumarsins í Hítará veiddist á síðasta degi júní. Núna eru þó komnir52 laxar úr ánni og173 á sama tíma í fyrra. Svipaðar sögur mætti ryfja upp úr öðrum ám.

Þverá/Kjarrá. Vikan gaf 248 laxa, vikan á undan 152. Alls voru komnir 656 laxar á land í gærkvöldi, það er góður stígandi en á sama tíma í fyrra voru þeir samt 721. Þverá/Kjarrá er skráð með 14 stangir.

Norðurá. Vikan gaf 184 laxa, vikan á undan 158 laxa. Alls voru í gærkvöldi komnir 575 í bók. Í fyrra var sama tala 634. Eins og í Þverá/Kjarrá munar um stórlaxinn. Norðurá er skráð hjá angling.is með 12 stangir.

Miðfjarðará. Vikuveiðin 180 laxar, fór úr 271 í 451 á 6 stangir. Vikan á undan með 101 lax þannig að stígandinn er fyrir hendi. Verið líflegt í Miðfjarðará en hún er samt nokkuð frá sinni tölu frá sama tíma í fyrra, þegar 608 laxar höfðu komið á land.

Hafþór Óskarsson, Teigsbrot, Jökla
Hafþór Óskarsson sáttir með lífið eftir að hafa landað 84 cm hrygnu á Teigsbroti í Jöklu. Mynd frá Strengjum.

Blanda. Síðasta vika skilaði 143 löxum og vikan á undan 102 löxum, heildartalan því komin í 371 lax. Hér munar afar miklu á sama tíma í fyrra þegar, skv angling.is, voru komnir 1020 laxar á land. Blanda er skráð með 4 stangir á angling, en við höfum heyrt að laxar veiðist nú upp eftir allri á, heildarstangafjöldinn er því orðinn virkur.

Ytri Rangá er nú komin til skjalana hjá okkur en um hana vantaði alla statistík fyrir viku. Vikan í henni gaf 215 laxa og hækkaði hún þannig úr 150 í 365 laxa. Ytri er skráð fyrir 18 stöngum, en tiltölulega fáar eru virkar snemma sumars. Þetta er all nokkuð frá „sama tíma tölu“ í fyrra þegar 916 laxar höfðu veiðst.

Langá. Um hana vantaði okkur nokkrar upplýsingar fyrir viku og létum við hana því róa. En hér hún komin með 170 laxa í vikuveiði sem hífir hana úr 161 laxi í 331 lax. Þetta er tíu stanga á og Langá er mjög nærri sinni tölu frá sama tíma í fyrra sem er 374 laxar.

Haffjarðará. Vikan gaf 152 sem er næstum tvöfldun milli vikna, 84 í vikunni á undan. Áin fór úr 160 löxum í 312 stykki. En þetta er eins og í Blöndu, miklu lægri tala en á sama tíma í fyrra, 472 komnir í bók þá. Haffjarðará er skráð með 6 stangir.

Elliðaár. Prýðis gangur í Elliðaánum, vikan þar að gefa 110 laxa og fór úr 128 í 238 laxa. Sem er meira en á sama tíma í fyrra, en þá höfðu veiðst 227 laxar.Áin er nú skráð á 6 stangir, en var framan af í 4 stöngum.

Það vantaði líka Grímsá síðast, en hér er hún komin með miklu sterkari opnun en í fyrra. Vikutalan þar var 112 laxar og áin fór úr 121 laxi í 233 stk. Sama tala í fyrra var 109 og er Grímsá þar með ein af þremur sem státa af hærri tölu nú heldur en á sama tíma í fyrra, áður var getið um Elliðaðaár, en þriðja er Laxá á Ásum sem við komum brátt að. Grímsá er skráð með átta stangir.

Víðidalsá kemur nú inn, vantaði síðast. Vikutalan hennar var 76 laxar, vikutalan á undan 55 laxar. Heildartalan hennar nú 148 laxar en var 251 lax í fyrra. 8 stangir skrifaðar á Víðidalsá.

Flóka. Er á þokkalegu róli, var með 83 laxa viku, fór úr 58 í 141. 153 laxar á sama tíma í fyrra. Munar aðeins 12 löxum. Þrjár stangir.

Laxá á Ásum. Byrjaði seint og fór ágætlega af stað. Vikan þar gaf 79 laxa en vikan á undan 31 lax, greinilega stígandi þar. Áin hækkaði því úr 56 í 135. Áin er sú þriðja í öllum þessum pakka sem er með hærri tölu en á sama tíma í fyrra. Laxá er skráð með fjórar stangir.

Vatnsdalsá er í næsta sæti með 108 lax í bók. Vikan þar gaf 48 laxa, en sú á undan 34. Heldur skrárra en rólegt samt. Áin færðsit úr 60 í 108 laxa. Sambærileg tala frá síðasta ári var 220 laxar, áin er því langt frá þeirri frammistöðu. Sex stanga á.

Laxá í Aðaldal var með 39 laxa viku skv angling.is en fyrri vika var 41 lax, áþekk veiði í raun og veru. Munar aðeins tveimur löxum. Áin er með 100 laxa slétt, en á sama tíma í fyrra hafði 266 löxum verið skilað á land.

Vatnsdalsá
Fallegur boltafiskur úr Vatnsdalsá. Myndin er fengin af FB síðu Vatnsdalsár.

Eystri Rangá er nú komin í mixið, en hún er ekki svipur hjá sjón eftir risa stórlaxagöngurnar í fyrra. Vikan þar gaf nú 66 laxa, en fyrri vikan 22 laxa. Áið fór þannig úr 32 löxum í 98 stykki. En talan á sama tíma í fyrra var, og haldið ykkur fast, 1111 laxar. Fram til þessa hefur verið sá tími sem kallaður hefur verið klakveiðitími og stangafjöldi er þá gjarnan á reiki.

Laxá í Leirársveit er nú með eftir að um hana vantaði gögn síðast. Vikan hennar var upp á 54 laxa á móti aðeins 11 yfir vikuna á undan. Áin fór þar með í 92 laxa á sínar sex dagsstangir. Áin er lægri en á sama tíma í fyrra, en það fyndna er að aðeins munar einum laxi, 93 í fyrra.

Selá í Vopnafirði var með 27 laxa viku sem ýtti henni úr 35 löxum í 62 stk. Þetta er lakara en í fyrra (90), en alls ekki svo slæmt samt sem áður og talað var um að opnunarhollið hefði verið metholl. Selá hefur sex stangir.

Hítará. Hún var með 23 laxa viku, en aðeins 10 laxa í vikunni á undan. Með þessu færðist hún upp í 52 laxa, en í fyrra var hún með 173 á sama tíma. Fjórar stngir eru skráðar á Hítará.

Laxá í Dölum er nýlega byrjuð og fór vel af stað eins og margar aðrar ár. Vikan gaf 25 laxa sem færði ána úr 11 löxum í 36 laxa. Sama tala í fyrra var 131 lax. Fjórar stangir í ánni.

Hofsá, menn bíða eftir að sjá framvindu hennar eftir öldudal síðustu sumra. Hún byrjaði vel, þetta var fyrsta vikan og skilaði 35 löxum á 6 stangir, en sama tíma í fyrra hafði 57 löxum verið landað.

Svalbarðsá er nýbyrjuð og komin með 24 laxa á þrjár stangir. Engin vikutala þar og eina viðmiðið frá síðasta ári er talan frá 13.7, en þá voru 85 laxar komnir á land.

Hrútafjarðará er á fyrstu viku og með 12 laxa á þrjár stangir. Á sama tíma í fyrra voru 38 laxar komnir á land.

Breiðdalsá er einnig á fyrstu viku og með 12 laxa á 6 stangir. Á sama tíma í fyrra voru 36 laxar komnir á land.

Jökla er og á fyrstu viku og einnig með 12 laxa á tólf stangir. Á sama tíma í fyrra voru komnir 38 laxar á land.

Fnjóská hefur ekki farið vel af stað. Hún skilaði 7 laxa viku sem kom á eftir viku sem gaf einn lax. Áin er í 12 löxum á átta stangir en á sama tíma í fyrra voru komnir 86 laxar úr ánni.

Leyfum Svartá að fylgja með, hennar fyrsta vika skilaði 5 löxum á fjórar stangir, en í fyrra höfðu 30 laxar veist á sama tíma.

Hér vantar nokkrar ár, helst ber þar að geta Urriðafoss sem slegið hefur svo rækilega í gegn, einnig vantar Laxá í Kjós, Straumfjarðará, Haukadalsá og Laugardalsá, en við getum aðeins unnið með það sem við höfum. Eflaust tínast árnar inn smátt og smátt og við bætum þeim inn eftir atvikum.