
Í fyrra fór veiðileyfasalinn Kolskeggur að selja í svokallað neðra svæði Eystri Bakka Hólsár. Allir vita að „Eystri bakkinn“ er kyngimagnaður veiðistaður, en þetta neðra svæði vakti litla lukku og myndir þaðan gátu alveg ýtt undir það. En nú hefur annað komið á daginn!
Já sem sagt, ef að myndir eru skoðaðar mætti líka þessu við öfug vatnamót. Þarna liggur gruggið við landið og tæra vatnið utar. Stafar það af útrennsli mýrarvatns. Auk þess virðist svæðið vera hafsjór. En síðustu dagar gætu breytt áliti veiðimanna á svæðinu.
„Það hefur verið líflegt á neðra svæði Austurbakka Hólsár og flestir veiðimenn að setja í fisk. Hann Bogdan veiddi þrjá laxa og nokkra sjóbirtinga þar í vikunni. Var bara býsna ánægður með daginn. Þarna ganga um auðvitað sömu þúsundir laxana sem að enda að mestu uppi í Eystri Rangá, en einnig Þverá. Margir eiga líka sín heimkynni í Hólsá að austan og það veiðist þar langt fram á haust. Það er engin aðstaða þarna, þ.e.a.s. við neðra svæðið, þannig að þetta er frábær kostur fyrir dagsferðir, það mætti vera meira framboð af slíku. Þá er aðgengi einnig gott og fínasta veiðikort að finna á vefsíðu okkar kolskeggur.is,“ sagði Jóhann Davíð Snorrason sölustjóri hjá Kolskegg í samtali við VoV.









