Laxveiðin að taka vel við sér

Bubbi iðinn við kolann við Laxána sína sem fyrr, hér með 92 cm hrygnu sýnist okkur úr Brúarhyl.

Þrátt fyrir að laxveiðin hafi farið seint og illa af stað, lítið verið af stærri laxinum og hann seinn að auki, þá hefur verulega ræst ú og svo er þessi úrkomutíð að viðhalda góðu flæði í ánum. Angling.is birti í hádeginu sínar föstu vikutölur og þær líti svona heilt yfir bara vel út.

Skellum okkur ara strax í efstu árnar.

Urriðafoss er efstur í tölum sem fyrr, alls 451 lax og 110 laxa vika sem er ansi hreint flott á fjórar stangir þó að meira hafi verið komið á sama tíma í fyrra.

Þverá/Kjarrá er með 381 lax, en þar vantar okkur samanburðartölu. Þetta er samt hörkugott miðað við hversu rólega allt saman fór af stað. Þar er nú einnig líflegt á Brennutanga þar sem áin mætir Hvítá

Norðurá er í þriðja sæti með 338 laxa eftir 132 laxa viku. Smálaxinn að láta að sér kveða þar og þess má geta að góð veiði hefur einnig verið í Straumunum, við útfall Norðurár út í Hvítá.

Næsta hólf á Ytri Rangá ásamt vesturbakkanum og þeim bakka Hólsár, 207 laxar þar eftir 153 laxa viku

Haffjarðará á næsta sætið með 205 laxa eftir 82 laxa viku. Allt í fínum gír þar.

Flóka á kannski nokkuð óvænt næsta hólf, komin í 177 laxa eftir 90 laxa viku. Þetta er líklega með því allra besta sem sést hefur í Flóku um árabil og örugglega eitt það besta í meðalveiði á landinu, aðeins Urriðafoss í líkum klassa. En þetta eru bara vangaveltur sem koma til af furðu spræku gengi Flóku. Og á engan hátt verið að tala Urriðafoss niður.

Næst hólf á Laxá í Kjós, 142 laxar þar og vikan að gefa 84 laxa. Mikill bati frá í fyrra. Og til viðbótar um gleðina þar, þá eru stóru birtingarnir farnir að ganga fyrir nokkru og farnir að blanda sér í aflann.

Grímsá á næsta hólf, komin með 127 laxa eftir 73 laxa viku. Mikil framför frá 2021. Skammt á eftir er Stóra Laxá með 125 eftir viku upp á 71 lax. Ein besta byrjun þar í manna minnum. Endum þetta svo á Miðfjarðará með 109 laxa og viku upp á 41 lax. Allan pakkan má svo skoða á angling.is

Guðmundur Steinbach og Katrín dóttir hans með 63 cm lax af Hrauninu. Myndir tók Ása Björg Guðlaugsdóttir.
Og hin dóttiri Guðrún lét sitt ekki efir liggja og landaði 60 cm úr Ullarfossi.

Förum ekki neðar á listann, en þar eru margar frábærrar og þekktar ár. sumar byrjuðu mjög seint aðrar fóru rólega af stað. Og þá mætti alveg hafa Elliðaárnar með á lista þessum, þar hefur veiði verið frábær að undanförnu og mál manna að mikið sé af laxi, hann sé á öllum svæðum og enn göngur. Við rákust t..d á skemmtilega FB færslu hjá Guðmundi Steinbach sem var í ánni með fjölskyldu sinni í vikunni: „Frábær dagur og dæturnar fengu báðar lax,“ skrifaði Guðmundur, en eins og margir vita eru Elliðárnar sérlega barnavænar og fjöldi bara hefur veitt þar sæina fyrstu laxa, ekki síst fyrir tilstilli barna- og ungligdasaga sem SVFR hefur skipulagt síðustu ári.