Skógá að mestu lokuð

Skógá er kannski þekktust fyrir hinn fagra Skógafoss.

Lítið sem ekkert verður veitt í Skógá í sumar, kannski bara 15 til 20 daga til að freista þess að ná laxi í klak.Þetta er m.a. gert í verndarskini, en átak er hafið til að hífa ána aftur upp, en það er ekki svo langt síðan að áin var gjöful og vinsæl laxveiðiá.

Ásgeir Arnar Ásmundsson staðfesti þetta í samtali við VoV. „Já þetta verður alger lágmarksástundun, eins konar míní síson. 20 dagar í það mesta. Við erum komnir með ástak í gang til að byggja ána rólega upp aftur, slepptum t.d. í hana 25þúsund seiðum nú í vor og væru menn að vonast til þess að ná klaklaxi í sumar til að halda átakinu gangandi. Við stefnum á að hafa fimmtíu prósent nýtingu næsta sumar og síðan koll af kolli,“ sagði Ásgeir.

Mikið hefur verið fjárfest við Skógá, nýtt og glæsilegt veiðihús er risið og fylgir það þegar veitt verður í sumar, en fer aðra daga í útleigu til ferðamanna.