Nýjar tölur alveg að koma hjá angling.is, en það þarf vart að pæla meira í því. Víðast er þetta ágætis bæting frá hörmugunum í fyrra. Bætingin er þó mismikil. Við skoðum þetta aðeins nánar þegar fer að ljúka. Staðreyndin er sú að það verða eflaust víða slakar tölur síðustu viku því að ár eru ansi víða orðnar ansi vatnslitlar. Það passar illa við kippinn sem haustveiðin á alltaf að taka….en við rákum okkur á afar skemmtilega og áhugaverða statistík frá Laxá í Aðaldal.
Þökkum það Jóni Helga Björnssyni formanni LV og Veiðifélags Laxár í Aðaldal. Þegar LV birti síðast tölur úr ám þann 1.september, stóð Laxá í Aðaldal í 823 löxum. Nú stefnir í lokun árinnar og spurning hvort að hún nær aftur 4 stafa tölunni og einhverri af fyrri reisn. En það sem Jón Helgi benti okkur á að Mjósund, fyrsti veiðistaður fyrir ofan Æðarfossa hafði þann 1.september gefið 200 laxa. Það er mögnuð prósenta af heildarveiði. Komment fylgdu voru á þá leið að mörg svæði ofan fossa hefði verið slök, og aðeins Grástraumur/Hagastraumur og Hólmavað hefðu verið í „stuði“.
En þessu vildu við deila, skoðum svo tölurnar frá LV seina í vikunni. Vel að merkja, að „Krókódílarnir“ sem við vitum ekki af hverju eru kallaðir það, s.s. stóru hængarnir eru auðvitað komnir á kreik, en það hafa líka veiðst nokkrar hrygnur í sömu yfirstærð. Hvað heita þær: ??? Sporðaköst?










