Það má segja að hver vikan sé nú annarri lík í laxveiðinni. Þessar sömu venjulegu ár eru með boðlega veiði, annars staðar er dauft og dofnandi. Það kom smá væta og þar sem hennar gætti komu dálítil skot. Þá eru stóru hængarnir komnir á kreik.

Veðurfarið að undanförnu speglaðist aftur í aflatölum síðustu viku. Enn fremur sá árstími sem nú fer í hönd. Nokkrar ár áttu samt góða viku.

Það má sjá eitt og annað í tölunum. Mjög svipaða sögu og frá síðustu vikum. Á Suðvesturlandi upp í Borgarfjörð hafa smálaxagöngur verið í lagi og veiðin yfirleitt í góðu lagi á heildina litið og víða betri en á sama tíma í fyrra. Sumar hafa náð heildartölu síðasta árs og fleiri munu ná slíku hinu sama. Ár á þessu svæði eiga talsvert inni ef að skilyrði batna með haustinu. En veiðin var yfirleitt fremur róleg síðustu vikuna þó að vætan hafi lyft hlutunum dálítið þar sem hennar naut við.  Út á Snæfellsnesi voru göngurnar ekki eins hressar og sama má segja um árnar í Dölunum. Þar hefur vatnsleysi sumarsins sagt mikið til sín, en þó má vel við una gang mála í Haffjarðará eins og stundum áður. Laxá og Haukan, eru taldar eiga nokkuð inni ef veðurlag verður hagstæðara, en laxamagnið í þeim er samt minna en í fyrra.

Norðanlands og Norðaustan hafa árnar í besta falli verið þokkalegar, jafnvel slakar sumar hverjar.  Mun minna af stórlaxi en í fyrra og smálaxinn seinn að skila sér. Má jafnvel segja að smálaxagöngurnar hafi verið beinlínis kraftlausar það sem af er. Miðfjarðará og Laxá á Ásum bera höfuð og herðar yfir aðrar ár á þessum slóðum. Í Vopnafirði, þar sem verið hefur niðursveifla síðustu sumur, kætast menn helst vegna þess að ástandið er ekki lakara en í fyrra, bæði Hofsá og Selá hafa gefið nokkrum löxum fleiri en á sama tíma í fyrra og ástandið almennt heldur betra en í fyrra. Þó átti hvorug neitt sérstaka viku og Selá dalaði nokkuð milli vikna.

Á sama tíma eru stöku ár nánast ónýtar, t.d. Fnjóská og Svartá, þar rættist ekki úr þó að enn geti það gerst. Þá er ekki hægt að horfa fram hjá stöðu mála í Breiðdalsá. VoV minnist þess varla öll þau ár sem við höfum fylgst með og unnið úr tölum angling.is, að vikuveiði í þekktri og nafntogaðri laxveiðiá sé núll laxar, eins og var fyrir þremur vikum. Og í þeirri næstu er varla hægt að tala um framför, því skv tölum angling.is var vikuveiðin í Breiðdalsá aðeins tveir laxar. Síðan datt áin aftur í núllið og enn og aftur þessa síðustu viku. Sem sagt, tveir laxar skráðir á heilum mánuði.

Á Suðurlandi er þetta rólegt nema í Rangánum. Byrjuðu báðar frekar rólega, sérstaklega þó Eystri Rangá, en báðar hafa verið sterkar síðustu vikurnar og Ytri Rangá var nú að venju með lang bestu vikutöluna. Og veiðitölur í Eystri Rangá hafa verið flottar síðustu vikur. Dalaði samt talsvert í Ytri Rangá frá fyrri viku og sama má segja um Eystri Rangá. Kíkjum á árnar, hverja fyrir sig og í sviga á eftir hverri vikutölu má sjá hvernig undangengnar vikur gengu.

Ytri Rangá. Góð vika þar, lakari þó en verið hefur, með 364 laxa (472, 865, 594,717, 668, 332, 205 og 215 laxar). Áin þá komin í 4582 laxa en hafði gefið 6309 stykki á sama tíma í fyrra. Munar aldeilis enn um hinar mögnuðu stórlaxagöngur í fyrra.

Bernd Koberling, Eric Koberling
Meistari Bernd Koberling að glíma við lax i Miðfjarðará. Mynd Eric Koberling.

Miðfjarðará. Vikuveiðin var mjög góð, eina ferðina enn, eða 269 laxar sem er svipað og vikuna á undan (282, 213, 321, 424, 256, 453, 298, 180 og 101). Magnað hvað áin heldur háum standard.  Áin fór í 2937 laxa á 10 stangir, en 3503 laxar höfðu komið á land á sama tíma í fyrra. Þetta er jú umtalsvert lakari tala en í fyrra, en samt mjög góð útkoma sérstaklega m.t.t. erfiðra skilyrða næstum allt sumarið.

Þverá/Kjarrá. Vikan var nokkuð góð, gaf 113 laxa (177, 134, 73, 81,74, 237, 345, 248 og 152). Minnkandi vatn og hitaviðri hafa samt sett mark sitt á ána. Alls voru komnir 1890 laxar á land á miðvikudagskvöldið, en á sama tíma í fyrra voru þó komnir 1755 laxar á land þannig að áin er enn yfir veiði sama tíma í fyrra. Þverá/Kjarrá er skráð með 14 stangir.

Eystri Rangá. Datt aðeins niður að þessu sinni. Vikan þar gaf nú 88 laxa (284, 310, 419, 334, 137, 56, 47, 66 og 22). Áin fór í 1773 laxa, en sama tala í fyrra var 2858 laxar.

Norðurá. Vikan gaf 87 laxa sem er augljós framför miðað við vikurnar á undan (54,74, 53, 80, 129, 172,219, 184 og 158)  Vatnsbúskapur árinnar lagaðist nokkuð við vætuna í vikunni.  Talsvert er af laxi í ánni og hún er í hópi þeirra sem á talsvert inni ef að úr skilyrðum rætist. Alls voru á miðvikudaginn komnir 1442 laxar í bók. Í fyrra var sama tala 1218 laxar, sem sagt enn þá betra nú en í fyrra og verður þegar upp er staðið. Norðurá er skráð hjá angling.is með 12 stangir.

Blanda. Síðasta vika skilaði aðeins 27 löxum og óhætt að segja að komnar séu yfirfallstölur (59, 112, 145, 161, 168, 231,143 og 102), heildartalan því komin í 1417 laxa.  Á sama tíma voru komnir 2295 laxar á land. Blanda var skráð með 4 stangir framan af á angling.is, en en mest allt sumar veitt á 14 stangir.

Langá. Vikan gaf 77 laxa, (88, 75, 111, 90,142, 199, 201 og 170 vikurnar á undan) Heildartalan 1314 laxar og var á sama tíma í fyrra 1106 laxar. Það stefnir því í betri vertíð þetta sumarið í Langá, haft er fyrir satt að þar sé mikið af fiski og ef að rignir fyrir vertíðarlok gæti orðið mikil og góð veisla. Langá er skráð með tíu stangir.

Haffjarðará. Vikan var róleg og nánast eins og vikan á undan, eða 52 laxar (53, 68, 104, 138, 123, 127,152 og 84). Áin fór í 1085 laxa. Á sama tíma í fyrra voru komnir 1178 laxar á land. Af tölunum má lesa að þar finna menn nú í vaxandi mæli fyrir hinum erfiðu skilyrðum. Haffjarðará er skráð með 6 stangir.

Grímsá. Vikutalan í Grímsá dalaði miðað við vikuna á undan, gaf núna 50 laxa ( 74, 56, 101, 93, 91,142,128 og 112). Grímsá hefur löngum haldið vatni betur en flestar ár í héraðinu og það skilar sér, en nú haustar að og tölurnar bera það með sér. Áin er nú komin í 968 laxa en sama tala í fyrra var 441 stk, Grímsá er því einn af sigurvegurunum þetta árið og siglir klárlega yfir í fjögurra stafa tölu. Grímsá er skráð fyrir 8 stöngum.

Laxá á Ásum. Er alveg í lagi, og vikan var fremur góð, gaf 80 laxa (64, 89, 101, 98,63, 133, 107, 79 og 31). Vætunnar gætti á svæðinu og skilaði sér í betri veiði en vikuna á undan. Áin var í gærkvöldi með 870 laxa, en 540 laxar voru í bók á sama tíma í fyrra. Laxá er skráð með fjórar stangir.

Selá. Veiðin datt mikið niður eftir líflega viku á undan. Vikan nú gaf aðeins 23 laxa (128, 67, 93, 135, 123, 110, 95 og 27 í vikunum á undan). Heildartalan nú 836 laxar en var 771 á sama tíma í fyrra. Þetta er því örlítið betra en í fyrra. Sex stangir í Selá.

Elliðaárnar. Veiðin var mun betri en vikuna á undan sem var raunar furðu slök. Alls komu 66 laxar í vikunni (23, 36, 58,70,102, 130, 107 og 110). Heildartalan núna 830 laxar en var 648 laxar á sama tíma í fyrra. Elliðaárnar voru með fjórar stangir framan af,en sex stangir að undanförnu.

Norðlingafljót. Fljótið kemur nú inn í listann þriðju vikuna í röð, en áin hefur allt annað eðli en aðrar ár sem hér eru teknar fyrir. Alkunna er að ólaxgengt er í Fljótið, en hafbeitarlax úr Hafnará er fluttur í ána og veiddur á stöng. Vikutalan í Fljótinu var flott, 116 laxar (142, 293, 133, 55). Vaxandi og fín veiði. Stendur nú í 806 löxum.  Norðlingafljót heldur vel vatni sínu.

Laxá í Aðaldal. Vikutalan hennar var aftur slök, 44 laxar (33, 49, 57, 70, 57, 146, 71 og 39), nokkrar sveiflur þarna á ferðinni en í heild slakt og ekki batnandi svo neinu nemi. Bót í máli að nú ber á því að risahængarnir séu farnir að verja óðul sín af vaxandi grimmd. Sem þýðir bara eitt.Í gær var áin í 627 löxum, en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 962 stykki.

Víðidalsá. Ekki sérlega gott í Víðidalnum, enn og aftur. Vikutalan var aðeins 20 laxar (41, 60, 38, 72, 57, 85, 82, 76 og 55) Heildartalan hennar nú 603 laxar en var 870 laxar í fyrra. 8 stangir eru skrifaðar á Víðidalsá.

Laxá í Kjós. Harðlífi þar eins og verið hefur undanfarnar vikur, en vikannú þó mun skárri heldur en vikan á undan. Vikan gaf 42 laxa (17, 30, 31, 58, 69, 93, 61, 114, 45). Laxá er talin eiga mikið inni og meira sé af laxi í henni en í fyrra. Það þarf hins vegar kúvendingu á veðurfari til að það takist að bjarga einhverju. Áin er komin með 591 lax, en á sama tíma í fyrra hafði 383 verið landað. Þrátt fyrir þessi vandræði er áin því samt betri en í fyrra.

Vatnsdalsá. Svipað þar og verið hefur. Vikan gaf 41 lax, það sama og í fyrri viku. (41, 40, 55, 102, 52, 65, 42, 48 og 34). Áin færðist upp í 546 laxa. Sambærileg tala frá síðasta ári var 656 laxar. Sex stanga á.

Reynir Friðriksson
Reynir Friðriksson með glæsilegan 92 cm hæng austur í Rangárþingi.

Hofsá. Veiðin er ívið meiri en í fyrra og meira talið af fiski í ánni og betur dreifður. Vikan var þó slök miðað við fyrri vikur, eða 38 laxar (67, 55, 67,93, 46, 59, 40 og 35). Alls þá komnir 500 laxar á 6 stangir, en sama tíma í fyrra hafði 425 löxum verið landað.

Laxá í Leirársveit. Þar var besta vikan í nokkurn tíma, gaf 54 laxa (18, 11, 31, 47, 80, 64, 61 og 54). Slæm skilyrði hafa herja á ána og veiðimenn hennar, en vætan skilaði betri gangi að þessu sinni. Vantar samt meiri rigningu. Heildartalan er 462 laxar en voru 330 á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir hremmingarnar er áin því engu að síður með betri tölu en í fyrra! Laxá er talin eiga talsvert inni ef að úr skilyrðum rætist frekar.

Laxá í Dölum. Var svipuð og vikuna á undan. Vikan gaf nú 35 laxa (39, 85, 47, 38, 84, 33, 56 og 25). Þurrkar hafa skemmt mjög fyrir í Laxá eins og víðar. Alls eru núna 453 laxar komnir á land, en sama tala í fyrra var 972 laxar. Fjórar stangir í ánni.

Hítará. Tók góðan kipp eftir afar rólega viku á undan, en vikan nú gaf 64 laxa (22, 45, 17, 50, 67, 73, 49, 23 og 10).  Skilyrði hafa verið verulega slök, en vætan hjálpaði til. Með þessu færðist hún upp í 439 laxa, en í fyrra var hún með 717 laxa á sama tíma. Fjórar stangir eru skráðar á Hítará.

Haukadalsá. Miðað við síðasta sumar þá er þetta mjög rólegt í Hauku og vikan var ekki lífleg, raunar sú lakasta, eða aðeins 18 laxar (28, 38, 36, 38, 54, 48, 33, 41 og 27).  Áin hefur gefið 377 laxa. Á sama tíma í fyrra voru komnir 885 laxar úr ánni. Fimm stangir.

Skjálfandafljót. Hér er átt við neðri svæðin. Vikutalan hennar nú var  ömurleg, eða aðeins 2 laxar skráðir (7, 43, 80, 55,25, 60, 35, 22, 21)Þar með hafa veiðst 372 laxar á svæðinu. Sambærileg tala frá síðasta sumri liggur ekki fyrir.

Flóka. Þar var aftur róleg vika með 29 skráða laxa  (21, 20, 22, 17,22, 47, 51 og 83). Hefur verið á þessu sama rólega róli síðustu vikurnar. Áin er samt komin í 370 lax, en 290 laxar voru komnir á sama tíma í fyrra. Betra, þrátt fyrir drómann. Þrjár stangir.

Þverá í Fljótshlíð. Þar gekk bærilega og vikan gaf 47 laxa (32, 69, 63 og 74 laxar í fyrri vikum, fleiri vikur ekki til staðar á angling.is). Áin fór þá í 331 lax en var með 231 á sama tíma í fyrra.

Stóra Laxá. Ekki var nú vikan alveg nógu góð, eina ferðina enn, austur í Hreppum, 21 lax skráður þar að þessu sinni  (7, 7,23, 15, 52, 10, 46 og 117). Þarna er sárlega beðið eftir haustgöngunum sem áin er fræg fyrir. Áin þá komin í 330 laxa. Á sömu dagsetningu í fyrra voru komnir 305 laxar á land. Enn státar Stóra því af betri tölu en á sama tíma í fyrra. Tíu stangir.

Jökla. Áin var nú heldur skárri en vikuna á undan, gaf 29 laxa (10, 53, 60, 35, 50, 50, 18 og 12). Alls 317 laxar en í fyrra voru þetta 502 laxar á sama tíma.

Svalbarðsá. Nokkuð góð vika þar að baki, 46 laxar (30, 41, 16, 52, 31, 32 og 16 laxar). Áin þá komin í 288 laxa, en tala yfir ána frá sama tíma í fyrra var 318 laxar.

Straumfjarðará. Verið frekar dauf hún Strauma, en tók nú aðeins við sér með 37 laxa viku(8, 21, 9, 25, 44, 51, 16, 42 og 18). Hún er núna með 271  lax á þrjár stangir en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 306 laxar.

Hrútafjarðará. Vikan mjög í anda nokkurra hinna undangengnu, gaf 25 laxa (33, 22, 93, 32,10, 45, 13). Áin þá komin með 235 laxa en var með 340  á sama tíma í fyrra.

Búðardalsá.  Vikuveiðin nú var 11 laxar (23, 23, 20 og 21 lax(ar) í fyrri vikum). Áin fór þar með í 210 laxa í sumar.

Laugardalsá. Hefur verið mjög róleg í allt sumar. Vikan gaf 13 laxa  (9, 14, 12, 15, 20, 28, 10, 13) Áin hefur gefið 144 laxa en í fyrra voru 193 laxar á sama tíma. Afskaplega keimlík vertíðin sem sagt.

Affall. Affallið var með viku upp á 22 laxa. (37, 24, 26 laxar í þremur fyrri vikum). Heildarveiðin er nú 138 laxar, en 478 höfðu veiðst á sama tíma í fyrra.

Svartá. Svartá hefur flýtt sér hægt þetta árið. Lak þó loks í þriggja stafa tölu, en stoppaði við 100 laxa slétta í fyrri viku! Vikan nú var arfaslök eins og aðrar vikur í sumar, aðeins 4 laxar í þetta skipti, 2 laxar! (12, 25, 11, 15, 9, 17, 6 og 5) Veitt á fjórar stangir. Áin þá komin í 104 laxa en í fyrra höfðu  265 laxar veiðst á sama tíma.

Fnjóská. Slök sem fyrr. Eiginlega bara léleg, eða jafnvel ónýt, hvað sem veldur. Vikan nú gaf aðeins 10 laxa (7, 12, 14, 12, 4, 7, 6 og 7 laxar). Alls frá opnun 84  laxar en voru 165 á sama tíma í fyrra.

Breiðdalsá. Hvað er með Breiðdalsá? Enginn lax skráður yfir heila viku fyrir þremur vikum. VoV man varla eftir annarri eins uppákomu öll þau ár sem við höfum ritað um og fylgst með veiðitölum. Næsta vika gaf svo 2 laxa skv angling.is.Og vikuna þar eftir var aftur núllað. Og núna, annað stórt 0 laxar (0, 2,0,10, 10, 8 og 12).  Veitt á sex stangir. Alls komnir 55 laxar á land, en á sama tíma í fyrra voru  252 laxar komnir á land og þótti slakt.