Við birtum vænan slatta af lokatölum í gær og í dag tökum við fyrir vikuveiðiprósessinn í þeim ám sem enn eru opnar. Vikan var bland í poka að þessu sinni, eins og svo oft áður reyndar, en svona fór þetta….
Þessa síðustu viku brá svo við að nánast alls staðar á landinu var komið rífandi vatn, helst að uppsveitir vestanlands hefðu farið varhluta af dembunum. Þannnig sagði Andrés í Síðumúla, einn umsjónarmanna Þverár/Kjarrár, að lítið hefði sést til vætu á sama tíma og menn lentu í flóðvatni t.d. á Snæfellsnesinu. En víðast hefur vatnið verið gott, jafnvel heldur mikið. En skoðum þetta….
Ytri Rangá. Góð vika þar, með 447 laxa (471, 1006, 364, 472, 865, 594,717, 668, 332, 205 og 215 laxar). Áin þá komin í 6526 laxa en hafði gefið 8379 stykki á sama tíma í fyrra.
Miðfjarðará. Vikuveiðin var mjög góð, eina ferðina enn, en fer nú minnkandi eða 157 laxar (231, 302, 269, 282, 213, 321, 424, 256, 453, 298, 180 og 101). Magnað hvað áin heldur háum standard, segjum við eina ferðina enn. Áin fór í 3627 laxa á 10 stangir, en 4195 laxar höfðu komið á land á sama tíma í fyrra. Þetta er jú umtalsvert lakari tala en í fyrra, en samt mjög góð útkoma sérstaklega m.t.t. erfiðra skilyrða næstum allt sumarið.
Eystri Rangá. Er að fjara út í bili, en drjúgur tími þó eftir að engin leið að sjá hvað verður, vikan nú gaf 47 laxa (75, 135, 88, 284, 310, 419, 334, 137, 56, 47, 66 og 22). Áin fór í 2030 laxa, en sama tala í fyrra var 3149 laxar.
Langá. Langá mallar í svipuðu fari og síðustu vikur, gaf nú 80 laxa (77, 69, 77, 88, 75, 111, 90,142, 199, 201 og 170 vikurnar á undan) Heildartalan komin í 1540 laxa og var á sama tíma í fyrra 1312 laxar. Langá er skráð með tíu stangir.
Grímsá. Vikan nú gaf 93 laxa (68, 85, 50, 74, 56, 101, 93, 91,142,128 og 112). Áin er nú komin í 1214 laxa en sama tala í fyrra var 574 stk, Grímsá er því einn af sigurvegurunum þetta árið. Grímsá er skráð fyrir 8 stöngum.
Norðlingafljót. Áin sú arna hefur allt annað eðli en aðrar ár sem hér eru teknar fyrir. Alkunna er að ólaxgengt er í Fljótið, en hafbeitarlax úr Hafnará er fluttur í ána og veiddur á stöng. Vikutalan í Fljótinu var slök að þessu sinni, 39 laxar (43, 87, 116, 142, 293, 133, 55). Eðlilegt að það dali. Ágætis veiði í það heila samt. Stendur nú í 975 löxum en 609 höfðu veiðst á sama tíma í fyrra.
Víðidalsá. Meira af því sama, en dalandi. Vikutalan var 32 laxar (51, 36, 20, 41, 60, 38, 72, 57, 85, 82, 76 og 55) Heildartalan hennar nú 722 laxar en var 1053 laxar í fyrra. 8 stangir eru skrifaðar á Víðidalsá.
Laxá í Kjós. Togast en togast hægt, vikan nú gaf 33 laxa (14, 40, 42, 17, 30, 31, 58, 69, 93, 61, 114, 45). Það er annað hvort í ökla eða eyra. Eftir þurrkana er nú svo mikið vatn í ánni að það þarf að leita að laxinum! Áin er komin með 678 laxa, en á sama tíma í fyrra hafði 471 verið landað. Þrátt fyrir þessi vandræði er áin því samt betri en í fyrra.
Laxá í Dölum. Dalaði eftir tvær nokkuð góðar vikur, gaf nú 49 laxa (68, 91, 35, 39, 85, 47, 38, 84, 33, 56 og 25). Þurrkar hafa skemmt mjög fyrir í Laxá eins og víðar en ástandið hefur batnað nokkuð. Alls er núna kominn 661 lax á land, en sama tala í fyrra var 1431 lax. Fjórar stangir í ánni.
Vatnsdalsá. Svipað þar og verið hefur. Vikan gaf 33 laxa (35, 39, 41, 41, 40, 55, 102, 52, 65, 42, 48 og 34). Áin færðist upp í 653 laxa. Sambærileg tala frá síðasta ári var 822 laxar. Sex stanga á.
Hofsá. Veiðin er ívið meiri en í fyrra og meira talið af fiski í ánni og betur dreifður. Vikan var þó aftur slök, eða aðeins 20 laxar (30, 15, 38, 67, 55, 67,93, 46, 59, 40 og 35). Alls þá komnir 565 laxar á 6 stangir, en sama tíma í fyrra hafði 492 löxum verið landað.
Haukadalsá. Dalandi, en vikutalan nú var 19 laxar (39, 38, 18, 28, 38, 36, 38, 54, 48, 33, 41 og 27). Áin hefur gefið 473 laxa. Á sama tíma í fyrra voru komnir 1056 laxar úr ánni. Fimm stangir.
Flóka. Þar var aftur róleg vika með 10 laxa skráða (13, 18, 29, 21, 20, 22, 17,22, 47, 51 og 83). Hefur verið á þessu sama rólega róli síðustu vikurnar og er orðin þreytt. Áin er samt komin í 411 lax, en 369 laxar voru komnir á sama tíma í fyrra. Betra, þrátt fyrir drómann. Þrjár stangir.
Þverá í Fljótshlíð. Rólegt, aðeins 11 laxar, en sumarið hefur verið gott (24, 34, 47, 32, 69, 63 og 74 laxar í fyrri vikum, fleiri vikur ekki til staðar á angling.is). Áin fór þá í 400 laxa en var með 257 á sama tíma í fyrra. Býsna góð vertíð í Fljótshlíðinni.
Stóra Laxá. Aðeins að koma upp en ekki risatölur sem von er á á þessum tíma haustins. Enn er þó von. Vikan gaf 38 laxa (21, 7, 7,23, 15, 52, 10, 46 og 117). Þarna er sárlega beðið eftir haustgöngunum sem áin er fræg fyrir. Áin þá komin í 380 laxa. Á sömu dagsetningu í fyrra voru komnir 392 laxar á land. Tíu stangir.
Hrútafjarðará. Orðin þreytt, aðeins 19 laxa vika (59, 31, 25, 33, 22, 93, 32,10, 45, 13). Áin þá komin með 344 laxa en var með 480 á sama tíma í fyrra.
Jökla. Eftir núll í Jöklu vikuna á undan er talan núna 2. Yfirfallstölur og eflaust lítil ástundun líka. (13, 29, 10, 53, 60, 35, 50, 50, 18 og 12). Alls 330 laxar en í fyrra voru þetta 548 laxar á sama tíma. Þessu er lokið í Jöklu í ár.
Svalbarðsá. Svipað og síðast, gaf nú 13 laxa (11, 17, 46, 30, 41, 16, 52, 31, 32 og 16 laxar). Áin þá komin í 329laxa, en tala yfir ána á sama tíma í fyrra var ca 355 laxar). Þrjár stangir.
Affall. Affallið var með viku upp á 19 laxa (8, 15,22, 37, 24, 26 laxar í fyrri vikum). Heildarveiðin er nú 180 lax, en 640 höfðu veiðst á sama tíma í fyrra.
Svartá. Sama deyfðin yfir Svartá og vikan gaf aðeins 4 laxa (7, 6, 4, 2 ,12, 25, 11, 15, 9, 17, 6 og 5) Veitt á fjórar stangir. Áin þá komin í 121 lax en í fyrra höfðu 362 laxar veiðst á sama tíma.
Breiðdalsá. Breiðdalsá fer aðeins upp fyrir Fnjóská á stafrófi….vikutalan var heilir 4 laxar (21, 25, 0, 0, 2,0,10, 10, 8 og 12). Veitt á sex stangir. Alls kominn 105 laxar á land, en á sama tíma í fyrra voru 372 laxar komnir á land.
Fnjóská. Sama og áður. Deyfð og doði. Vikan nú gaf aðeins 2 laxa (4, 15, 10, 7, 12, 14, 12, 4, 7, 6 og 7 laxar). Alls frá opnun 105 laxar en voru 187 á sama tíma í fyrra.










