
Batnandi skilyrði og hressilegar göngur skiluðu víða prýðisgóðum vikutölum og ef fram heldur sem horfir lítur út fyrir að þessi vertíð gæti orðið all miklu betri heldur en dapurleiki síðasta árs, þrátt fyrir hversu hægt og illa gekk framan af. Margar ár voru með 100plús laxa vikur og ein stóð algerlega uppúr eins og alla tíð frá upphafi vertíðar, Þverá/Kjarrá.
En kíkjum kannski fyrst á Laxá í Aðaldal. Þar er mat manna að göngur séu umtalsverðar og þar veiddist í gær einn sá stærsti á þessari vertíð, en á FB síðu Laxár sagði: „Góðir dagar í Laxá. Frábær veiði hefur verið síðustu daga í Laxá. Það komu 11 laxar á land í morgun fyrir neðan fossa og einn af þeim var 101 cm fiskur sem Benjamín Kári Matthíasson landaði. Hollið endaði í 45 fiskum. Miklar göngur í gangi og okkur hlakkar til framhaldsins.“
Það var og, vikutalan í Aðaldalnum var 83 laxar og í heild þá 180 laxar.
En að Þverá/Kjarrá. Hún átti sína þriðju viku í röð, losandi 300 laxa, fyrst 302, þá 361 og nú síðast 319. Áin komin í 1230 laxa og með annarri líkri viku gæti áin höggvið nærri sinni heildartölu síðasta sumars og var hún þá nánast eina áin sem gat státað fyrir alvöru af „varnarsigri“ sem var vinsælt orð á mörgum árbakkanum sumarið 2025. Norðurá var sömuleiðis með þriðju góðu vikuna, 111, 119 og svo 149 stykki nú síðast. Hún er þó langt að baki nágranna sínum, hefur skilað 529 löxum.
Annars ætlum við ekki að fara svo djúpt út í viku- og heildartölur frá angling.is. Þar er allt skipulega og snyrtilega sett upp og þangað skulu menn leita. Gaman er þó að sjá hvaða ár skiluðu bestu vikuveiðinni: Langá 193, Grímsá 179, Urriðafoss 177, Jökla 159, Kjósin og Miðfjarðará báðar 157 og Hítará 120. Gefum einnig Blöndu gott klapp með 86 yfir vikuna og alls þá 206, en áin rétt losaði 50 stykki í fyrra. Tökum líka ofan fyrir Stóru Laxá með 95 laxa og þá 252 samtals. Hún verður tæplega héðan af kölluð „Tóma Laxá“ eins og vinsælt var að grínast með hana fyrir margt löngu þegar hún átti nokkur léleg sumur í röð.
Annars voru þrjár aðrar ár með yfir 100 laxa vikur, Laxá í Leirársveit 107, Elliðaárnar og Haffjarðará 105 hvor. Fyrir utan Miðfjarðará og Blöndu þá er Norðvesturlandið afar rólegt og sama má segja um Norðausturhornið, utan að Jökla stendur sig frábærlega. Og nú er hætt að rigna vestanlands og vatn í ánum sjatnar. Og ætti að draga úr snjóbráð á hinum landshlutanum. Sjáum hverju það skilar.









