Meðalaldur stangaveiðimanna og kvenna á Íslandi fer hækkandi. Það er ekki mikil nýliðun í „stéttinni“ og það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir ýmsa, eins og veiðiréttareigendur, veiðibúðareigendur og leigutaka veiðisvæða. En svona er þetta eins og sakir standa. En það er dálítill hópur ungra veiðimanna að hasla sér völl og við nældum í einn 19 ára, Árna Kristinn Skúlason, en hann hafði kannski bakland sem fáir hafa, algjöran veiðinörd sem pabba, en Skúli Kristinsson er pabbi Árna Kristins og Skúli er gamall orginall.

Við heyrðum í Árna Kristni, sem þrátt fyrir ungan aldur, hefur starfað sem leiðsögumaður veiðimanna í all nokkur ár, eða síðan að hann var 14 ára.

Smá fyrst um þig og þín fyrstu skref í stangaveiði Árni….fyrstu skrefin væntanlega í Brúará, en svo þróunin og ferlið…. „Já, ég heiti Árni Kristnn, ég er 19 ára og er algjörlega forfallinn veiðimaður. Ég byrjaði mjög ungur, var þá með pabba mínum, Skúla Kristinssyni. Við fórum oft saman niður fyrir brú heima við Brúará (ættaðir frá Seli) að rafmagnsstaur sem var við árbakkann. Staurinn var styrktur svo áin myndi ekki brjóta hann þannig auðvelt var að stíga upp á stoðin til að fá betra útsýni á hylinn. Þar klifraði pabbi upp og sjónkastaði á bleikjurnar, hann setti í þær og rétti mér svo stöngina. Við fengum oft bleikjur, oft mjög vænar. Þetta er fyrsta minningin mín af stangveiði, ætli ég hafi ekki verið 4-5 ára.

Ég byrjaði 14 ára gamall að leiðsegja útlendingum í Brúará, ég hafði veitt hvern krók og kima með spún og þekkti ána ágætlega. Flestir voru þeir fluguveiðimenn og gekk veiðin ágætlega. Síðan þá hefur allt verið á uppleið og er ég að gæda mikið hvert sumar. Núna líka í laxveiði, en skemmtilegra þykir mér að gæda í silung, sérstaklega í Brúará.

Ég byrjaði ekki að kasta flugu fyrr en sumarið 2012, þá fór ég á kastnámskeið til Stefáns Hjaltested. Hann kenndi mér grunnin í fluguveiði og listina að kasta flugu. Eftir það varð ekki aftur snúið, bakterían föst í heilanum á mér.

Þú veiðir bæði lax og silung, hvernig þú skilur þar á milli, helstu kostir og gallar? Hvort aðhyllist þú frekar?

„Silungurinn er skemmtilegri að veiða en laxinn er skemmtilegri til að berjast við. Ég kýs að sjónkasta á silung fram yfir allt annað í stangveiðinni. Mér finnst skemmtilegast að veiða silung andstreymis, ekkert toppar það.“

Árni Kristinn með glæsilegan urriða.
Árni Kristinn með glæsilegan urriða.

Ertu alfarið í flugunni? Kannski í þeim hópi sem vilja ekkert annað?

„Alls ekki, nei, ég veiði stundum á spún, á reyndar ekki spúnastöng, fæ lánaða stöng hjá pabba. En það er oftast þegar nauðsyn krefur. Ég veiði hins vegar ekki á beitu, það er veiði sem ég hef enga ánægju af.

Ertu strangur V&S-maður? Borðar þú lax eða silung?

„Ég er alls ekki strangur V&S maður, ég hirði reglulega fisk til matar. Ég sleppi þó öllum silungi yfir 4 pundum, sérstaklega í ám og vötnum þar sem vatnið er kalt og fiskurinn stækkar hægt. Ég hirði þann lax sem ég má hirða, fer eftir kvóta þar sem kvóti er en sleppi oftast tveggja ára laxi.“

Þú ert í framvarðarsveit sem við getum kallað ungliðahreyfingar í stangaveiði….er einhver nýliðun í hópi stangaveiðimanna og hvað þyrfti að gera til að glæða áhuga fleira ungs fólks, bæði karla og kvenna….

„Stangaveiði er alls ekki vinsælt sport meðal ungs fólks, því miður. Við erum fáir undir tvítugt sem stundum þetta sport að krafti. Við erum með facebook hóp þar sem við skiptumst á ýmsum skemmtilegum sögum, myndum og öðru efni tengdu stangaveiði. Ef ungir veiðimenn lesa þetta mega þeir endilega adda mér á Facebook og ég bæti þeim í hópinn. Stangveiðin er alveg mögnuð, ég hef kynnst mjög góðum vinum mínum bara í gegnum það að ég sá að þeir eru veiðimenn. Magnað hvað sameiginlegt áhugamál getur dregið menn saman. Stangveiðina verður hreinlega að kynna betur fyrir krökkum, hef séð menn sem eru með námskeið í grunnskólum í fluguhnýtingum sem er auðvitað fullkomið hobbý fyrir unga sem aldna.“

Uppáhalds…flugan, aðferðin, staðurinn….?

„Hef alltaf átt erfitt með að gera upp á milli flugna, svo eigum við ekki bara að segja rauður Frances í laxinn og Mobuto í silunginn. Fer samt auðvitað eftir aðstæðum og árstíma hvað ég set undir. Aðferðin er andstreymis með púpum, banvænasta aðferðin í silung.

Ég á nokkra uppáhaldsstaði, Dynjandi í Brúará og Þreytandi í Eystri Rangá sitja örugglega efst á listanum. Dynjandi er sá veiðistaður sem ég bölva örugglega mest á hverju ári, ég hef gefið staðnum nafnið Fossbotn og liggur fiskurinn alveg í hvítfryssinu í fossinum. Þann stað veiði ég andstreymis með púpum. Þar missi ég marga tugi púpa á hverju sumri, staðurinn er hálfsmetra djúpur og hannaður fyrir festur. Ég man enn eftir því þegar ég gekk upp með ánni snemmsumars 2013, það var gjörsamlega ömurlegt veður en samt fór ég að veiða. Þegar ég bar Dynjanda augum var eins og flóðgátt hefði opnast, ég varð gegnsósa á örskömmum tíma. En skúrinn hætti fljótt og vindurinn sömuleiðis. Stóð ég einn við fossinn og setti saman stöngina mína, stöngin var Loop Adventure níu feta sexa. Algjör vinnuhestur sem stendur alltaf fyrir sínu. Í fyrsta kasti fór tökuvarinn í kaf og brá ég við, en það var botninn og missti ég báðar flugurnar mínar. Sama gerðist í næsta kasti svo ég ákvað að notast við aðra aðferð, setja tvær óþyngdar flugur á, svokallaða Buzzera. Fyrsta kast og tökuvarinn fór niður neðanlega í hylnum. Lyfti ég stönginni og það strekktist á línunni, loksins fiskur á. Barðist fiskurinn ótrúlega og rauk niður úr hylnum á svipstundu. Var þetta falleg bleikja, sirka 40cm og pattaraleg. Fékk hún líf eftir góðan bardaga. Ekkert gerðist síðan í langan tíma eftir þetta og voru góð ráð dýr því klukkan var að verða 10. Setti ég þá undir Krókinn og kastaði aðeins lengra en vant er þarna. Flugan lenti og sekúndubroti seinna byrjaði tökuvarinn að sigla á móti straumi og út í miðja á. Reisti ég stöngina hægt og fiskur var á, það leyndi sér ekkert. Hjó líkt og sleggja svo hjólið öskraði, ég réði ekkert við þennan fisk, hann hafði betur þarna eftir 5 mínútna bardaga. Síðan þá hef ég veitt þó nokkra stóra fiska en enginn situr jafn fast í minni mínu og þessi fiskur.

Glæsilegur urriði úr Stöðvarhyl í Minnivallalæk.
Glæsilegur urriði úr Stöðvarhyl í Minnivallalæk.

Þreytandi í Eystri Rangá er mögulega skemmtilegasti laxastaður sem ég veit um, rennslið er fullkomið og oftar en ekki er staðurinn stappaður af laxi. Ég fór þangað í sumar með Tómasi, góðum vini mínum. Ég lenti í algjörri draumaveiði, endaði með 3 laxa á land og 5 aðra sem láku af eftir gott reipitog. Hápunkturinn var án efa þegar Tómas var að kasta á hylinn og flækti óvart. Ég var búinn að setja saman fimmuna mína og skellti á Bismo straumflugu. „Eitt kast, á meðan þú ert að leysa úr flækjunni“. Þverkastaði og áður en ég gat mendað línuna strekktist á henni, laxinn velti sér og sá ég strax að um stórlax var að ræða. Hjólið öskraði og fiskurinn setti stenfuna á Tjarnarhyl, ekki gat ég stöðvað hann. Laxinn fór þó á grynningar, ekki dýpið meðfram hinum bakkanum. Ég sá að flugan var í kokinu á honum og ákvað ég að draga hann í land og gekk það upp. 83cm hrygna kom á land á fimmu í Eystri Rangá, ég brosti út af eyrum af gleði.“

Stærsti laxinn…urriðinn, birtingurinn, bleikjan…..

„Stærsti laxinn minn var 87cm hængur úr Fagradal í Eystri Rangá, nýgenginn og kolvitlaus. Urriðinn var 75cm skrímsli úr Laxá í Mývatnssveit, tók svart Héraeyra nr 16 í Skurðinum. Birtingurinn var 8 punda birtingur úr Varmá. Bleikjan… hef fengið 75cm Chernobyl bleikju úr Varmá en kýs að segja að stærsta bleikjan mín var 63cm bleikja sem ég fékk í Brúará.“

Minnistæð atvik af veiðiferlinum…

„Í hitteðfyrra var ég að veiða í Fossá í Þjórsárdal með Elías Pétri vini mínum, ég var ekki búinn að setja í lax og tíminn var að renna út. Ég skipti rauðum Frances fyrir Sunray Shadow og kastaði á breiðuna fyrir neðan Hjálparfoss. Þar setti ég í fisk á strippinu og öskraði á Elías „LAAAAAAX“ Hann hjóp til mín vopnaður háf og myndavél. Við brostum og hlógum, en síðan var ekki allt með felldu. Ég dróg fiskinn inn eins og poka, enginn bardagi í honum. Síðan kom hann á yfirborðið og var laxinn mikli ekkert nema smábleikja. Þótti okkur það verulega fyndið.

Annað atvik var Maríulaxinn, aldrei glaðari. Efri Hofteigsbreiða með pabba árið 2003, 7 ára gamll. Kastaði út blárri og svartri túbu og sökkvu. Laxinn tók í öðru kasti, 8 punda lax, held að ég verði aldrei jafn stoltur af sjálfum mér og þá.“