Sá stærsti hingað til

Hér er kappinn með tröllið úr Hagabökkum.

Stærsti lax sumarsins hingað til, eftir því sem við best vitum þ.e.a.s kom á land í dag í Laxá í Aðaldal. Staðsetningin kemur ekki á óvart. Nokkrar ár gefa slíka laxa ár hvert, en engin jafn marga og hvergi hafa tröllin meiri möguleika að hafa betur.

Sem sagt, þetta er stutt frétt. Theadór Friðjónsson fékk stærsta lax sumarsins á Hagabökkum í morgun 103,5 cm á sunray. Punktur basta og myndina fengum við af FB síðu Laxár í Aðaldal. Við sögðum nýverið frá 103 cm úr Svalbarðsá. Fyrir þá sem nenna að pæla í því, þá er sá lax kominn í annað sætið, en verður um aldur og ævi í fyrsta sæti hjá veiðimanninum sem landaði tröllinu. Hvað er hálfur sentimeter? Kannski all svakalegt mál ef laxinn mælist 99,5 cm. En samkvæmt sumum veiðast aldrei 99 cm laxar, hvað þá 99,5 cm, bara 90-95 cm…..