Upp er komið afskaplega vel kunnugt vandamál. Þar sem leyfirlausir aðilar hnýta annarra manna flugur í óþökk höfunda og hafa af því tekjur…og hafa af eigendum tekjur að auki. Nýjasta dæmið er flugan Valbeinn sem getið hefur sér gott orð sem frábær fluga við ýmsar aðstæður. En bíðum við, þetta segir höfundurinn á FB sinni:
„Flugan Valbeinn er hugverk , eign Reiðu Andarinnar og sé ég mig tilneyddan að skrifa þennan póst bara til þess að verja mitt vörumerki og mína vöru. Því miður hefur borið á að það er verið að selja fluguna nokkuð víða sem er ekki mín framleiðsla eða frá því fyrirtæki sem ég versla við sem er Atlantic Flies. Það sem er í umferð er bara ekki réttur Valbeinn. Það mega allir sem vilja selja fluguna mína bara einfaldlega hafa samband við mig Þorbjörn Helga eiganda og stofnada RÖ.“
Einmitt. Ekki flókið að hafa bara heiðarleikan að vopni. Fyrri dæmi sem VoV rekur minni til, er t.d. Snældan fræga, sem verið hefur ein öflugasta laxafluga síðustu áratuga. Grímur heitinn Jónsson var höfundur hennar og útskýrði sitt sinn fyrir VoV vísindunum við hönnun hennar. Hvernig vinir voru kallaðir í heimahús til að sjá hvernig hinar ýmsu prótótýpur virkuðu í vatni með því að hafa kranann í baðkeri mynda straum. Grímur fékk sér einkaleyfi á Snældunni, en dugði ekki til. Áður en varði var verið að hnýta „Snældu“ út um allt. Höfð pínu loðnari á búkinn og kölluð Snúður. Snúður og Snælda! Fyndið. Fyndið, en stuldur.
VoV efast ekki um að ef hausinn yrði opnaður frekar myndu fleiri dæmi detta inn, en þetta dugar. Sem sagt, Valbeinn er Valbeinn og ef hann er ekki hnýttur af Atlantic Flies eða höfundinum sjálfum, þá er það ekki sama flugan. Prívat mega menn auðvitað dunda við þetta, en fjöldaframleiðsla er þjófnaður.










