Ísinn brotinn í Jöklu

Hér er John karlinn Mappin með þann fyrsta úr Jöklu 2026, myndin er fengin hjá Strengjum.

Loksins var ísinn brotinn í Jöklu, er erlendur veiðimaður að nafni John Mappin setti í og landaði fallegri hrygnu á Blöndubreiðu, sem er mjög neðarlega í ánni. Laxinn er aðeins farinn að ráða við laxastigann.

Þröstur Elliðason var öllu hressari í dag þar sem þessum áfanga var náð. Þó er enn afar mikið vatn í ánni og veldur það vandræðum sem fyrr. Varðandi stigann, þá sagði Þröstur í dag: „Hann er kannski ekki alveg fiskfær svona á heildina litið, en ég var þar klst í fyrradag og nokkrir fiskar foru þá í gegn, en svo jókst vatnið aftur. Blöndubreiða er langt fyrir neðan hann.“ Úr þessu má lesa að regnvatnið er á bak og burt og eftir stendur snjóbráðin. Hún eykst þegar líður á daginn, en samkvæmt því má reikna með að stiginn sé fær að nóttu til og fram eftir morgni. Þrír fjórðu laxasvæðisins eru ofan við stigann og því má búast við því að veiði taki nú við sér þegar fiskur nær loks að dreifa sér aðeins. Svo má ekki gleyma því að enn er júní þótt lítið sé eftir af honum.

Og talandi um slakan júnímánuð. Lesa mátti í Sporðaköstum að fyrsti laxinn úr Laxá á Ásum hafi verið að veiðast nánast rétt í þessu. Það er af sem áður var að Laxá var opnuð samhliða Norðurá og Blöndu þann 1.júní. Svo hefur þetta verið fært aftur smátt og smátt. Og ekki að ástæðulausu. En heilt yfir þá hefur júnímánuður verið afar daufur. Ljóstýrur hér og þar en á heildina litið rólegt. Spáin um slakar stórlaxagöngur virðist hafa gengið eftir. Nú er spurningin með smálaxinn, sem sumir eru farnir að kalla „bjargvættinn“, en kannski rétt að bíða með nafngiftina þar til að í ljós kemur hvort hann standi undir henni.