Blanda að taka við sér?

Meters laxinn í teljaranum...

Hver hefði trúað því í krafti minningu síðustu sumra, að eitt af skærustu ljósunum á þessu rólega laxasumri (hingað til) myndi lýsa við Blöndu? Og það eftir enn eina núllopnunina.

Einn af löxum gærdagsins í Blöndu, glæsileg hrygna. Myndir eru frá Fish Partner
Já, síðustu sumur hafa ekki boðið upp á uppgrip í opnun Blöndu og svo oft hefur það gerst síðustu árin að margoft hefur það verið viðrað að opna ána seinna. Hvert núllhollið af öðru ætti að duga sem fínustu rök fyrir því. En eftir síðasta sumar, sem var algert botnfall í ánni, þá voru menn ekkert upprifnir þegar áin núllaði enn einu sinni í opnun. Og það stóð í nokkra daga. En svo…já svo.
Fyrir um viku síðan voru komnir 22 á land úr ánni og til upprifjunar voru þeir aðeins 54 allt síðasta sumar, skv tölum af vef LV. Síðustu dagar hafa síðan verið nokkuð líflegir, eða vitnum aðeins í frásögn af vef Fish Partner í dag, sem er leigutaki árinnar: „Það var stuð í nótt! Flott stórlaxaganga upp Blöndu. Samtals 12 laxar í yfirstærð skriðu upp í gegnum teljarann og líklega annað eins fór flúðina. 5 laxar komu svo á land á sv1 í gær á 2 stangir. Blanda sjaldan verið jafn tær og hún er í dag.
Hér eru teljara laxarnir: 78cm, 90cm, 80cm, 83cm, 100cm, 81cm, 76cm, 94cm, 96cm, 84cm, 78cm, 89cm.
Einmitt. Þetta lítur án nokkurs vafa mun betur út heldsur en í fyrra. Bíðum svo bara og sjáum hvað setur, en best að njóta á meðan varir. Svo hefur silungsveiði verið með eindæmum góð í ánni, en enginn fyrr en Fish Partner hefur gefið þeirri hlið árinnar gaum. Þarna er mikið af stórum urriða og sjóbirtingi, einnig bleikja. Betri tímar kannski að fara í hönd í Blöndu?