Ásgeir Arnar Ásmundsson sem um árabil hefur verið umsjónarmaður Heiðarvatns og Vatnsár ofan Mýrdals vinnur nú hörðum höndum að því að koma Skógá aftur á kortið. Og margt bendir til þess að það sé að lukkast. Lax er farinn að ganga og veiðast í ánni og besti tíminn í ánni framundan.

Árin upp að gosinu í Eyjafjallajökli 2010 var mjög góð veiði í Skógá og hliðaránni Kvernu. Jafnframt var þar afar góð silungsveiði lengi vel. Sumarið 2008 veiddust t.d. 1537 laxar og 500 bleikjur í Skógá og Kvernu, en gosið snéri öllu á hvolf. Bæði fyllti eldfjallið ána af ösku fyrir utan jú það að menn tóku upp á því að sturta ösku sem hreinsuð hafði verið frá nærliggjandi byggðum bólum út í ána. Þarflaust ætti að þurfa að segja að veiðiskapur leið þarna undir lok í nokkur ár þar til að athafnasamir veiðimenn tóku til við að sleppa seiðum á ný eftir að áin hafði hreinsað sig með tíð og tíma. Fátt fréttist þó af ánni og brátt hurfu menn frá ánni, þar til nú að Ásgeir lætur til sín taka á ný, því hann hefur áður sýslað við Skógá.

Skv upplýsingum sem finna má á veiðileyfavefnum www.veida.is sem tekið hefur að sér umboðssölu á veiðileyfum í svæðið þá hefur að jafnaði verið sleppt 25-35þúsund seiðum á ári í gegn um tíðina. Um er að ræða sleppingar gönguseiða þar sem Skógá er með óheppilegt hitastig fyrir laxinn. Eftir nokkur ár í skugganum er Skógá nú aftur komin á kortið.

„Við höfum verið á fullu í þessu verkefni og lagt mikið í það. Við erum vongóðir um að sú vinna muni skila sér. Lax hefur alltaf gengið frekar seint í Skógá og nú með vaxandi straumi höfum við séð líflegar göngur. Það fóru t.d. nokkrir tugir laxa upp Skógá og inn í Kvernu um helgina. Þá voru menn að sjá og setja í laxa víða, t.d. í ármótum Skógár og Kvernu, Raflínustreng og víðar. Svo slepptum við 30þús seiðum og gerum væntingar um 300 laxa í sumar. Aðal göngutíminn er frá viku af ágúst og út september. Ef allt gengur eins og ég vona þá koma sem sagt með látum nokkur hundruð laxar á næstu vikunum. Við höfum lítið selt af veiðileyfum enn sem komið er, enda svo til nýbyrjaðir að kynna fyrir veiðimönnum að Skógá sé aftur valkostur, þannig að það verður góð veiði hjá öllum, í það minnsta alvöru veiðivon,“ sagði Ásgeir í samtali við VoV nú í vikubyrjun.

Hann lét þess og getið að fyrst um sinn væri veitt frá morgni til kvölds því aðstaðan væri ekki tilbúin, en hann hefur tekið á leigu hús á Skógum og hefur verið að standsetja það með veiðimennsku í huga. Verður það komið í gagnið 12.ágúst næst komandi. „Stefnum á að taka félagsheimilið á Skógum í notkun 12 ágúst og út tímann, þar munu veiðimenn geta haft aðstöðu fyrir sig. Þetta er einföld og snyrtileg aðstaða og fín fyrir hópa. En svo er verið að undirbúa að byggja nýtt hús sem verður staðsett við Ferðamannafit, sem er neðan þjóðvegar,“ sagði Ásgeir að lokum.










