Það er frekar lítið að frétta af Norðausturhorninu annað en að mikill vatnselgur hefur gert veiðimönnum afar erfitt fyrir. Þó mun vera byrjað að skána ástandið, eftir því sem VoV kemst næst og laxar hafa sést og veiðst.
Rigningin mikla á dögunum hleypti öllu upp, skemmdi t.d. opnunina í Jöklu og í Vopnafirði vara einnig afar hátt í ám. Menn sem ætluðu t.d. í Fögruhlíðarós um síðustu helgi hættu við þar sem sandurinn að sunnan var allur á floti, eins og stöðuvatn yfir að líta. Það er annars hægt að veiða ósinn frá klöppunum að norðan, en kostar talsvert labb sem ekki allir nenna að leggja á sig. Sem er önnur saga. Veiðifólk sem kom á næsta degi tók göngutúrinn og fékk fallegan afla. Þá er ekki hægt annað en að finna til með Þresti leigutaka Jöklu sem hlakkaði svo mikið til vertíðarinnar þar sem vatnsstaða miðlunarlóna gaf fyrirheit um afar seint yfirfall, ef þá yrði nokkuð úr því. En þá kom þetta ástand, eins og öfugt yfirfall.
Mikill snjór er enn sagður í fjöllum og eftir að regnvatnið hafði skilað sér að mestu til sjávar, tók við snjóbráð. Það hefur því þurft að bíða nokkuð eftir sannkölluðum kjörskilyrðum. En menn standa vaktina, til marks um það er mynd sem við fengum að láni af FB síðu Hofsár, glæsilegur lax þar á ferðinni.










