Síðasta helgi, sem var löng, og þessi vika sem er nú langt gengin, hafa yfirséð flottan upptakt í silungsveiðinni víða um land. Það hefur meira að segja komið á daginn að víða er enn sjóbirtingur á sveimi, en sú vertíð mun senn þverra. Svo er laxinn kominn, búið að sjá til hans í Kjósinni og í Skugga í Borgarfirði. Þá hafa menn séð laxa skvetta sér á háflæði í Korpuósi síðustu daga.
Frekar magnað að sjá á FB að bæði SVFR og Fish Partner eru að sýna myndir frá hinu svokallaða „Miðsvæði“ í Laxá í Aðaldal. Lítið stundað sem vorveiðisvæði, en vaxandi áhugi á því og ekki að undra, þar er mikið af urriða. Urriðaveiði neðan virkjunnar eru engin nýlunda, en hefur flogið nokkuð undir radarinn. Þarna er allt vaðandi í urriða sem hefur sótt í sig veðrið síðustu ár ef eitthvað er, á kostnað laxa, sem hafa tínt tölunni í ánni. Þó vona allir að jafnvægið gamla góða náist aftur með tíð og tíma. En fyrir utan þetta Miðsvæði, má nefna Torfurnar, Presthvamm og fleiri svæði. Laxá er ekki síðri urriðaá neðan virkjunar en ofan. Sumir myndu segja að þetta væru ekki fjölskylduvæn svæði, en ef að er gáð, þá eru mörg þeirra einmitt það. Málið er nefnilega, eins og margir vita sem reynt hafa, að ef þú ætlar að veiða urriða, þá kastar þú ekki eins og þú sér í laxveiði. Oft er ekki aðeins hægt að veiða frá landi í ánni, heldur fást oft og iðulega alger tröll sem liggja fast við land, eða mjög stutt frá landi. Menn hafa verið að vaða út og lengja línuna í leiðinni. Svo er bara fiskur á og jafnvel bolti.
En að öðru þessu tengdu. Ritstjóri VoV stoppaði við Vífilstaðavatn um helgina og fylgdist með veiðimönnum við vestanvert vatnið í svona hálftíma. Var með sjónauka. Það voru nokkrir að kasta þarna og á meðan á stoppinu stóð landaði einn þremur fínum fiskum. Annar tveimur og sá þriðji einum. Þetta er Veiðikortsvatn og alger fjölskylduparadís.
Við höfum að sama skapi heyrt tíðindi frá svæðum eins og Gíslholtsvatni og Þveit, skammt vestan Hafnar. Góð skot á báðum stöðum, en ekki margir að veiða. Fjölskylda ein stoppaði við Þveit á leið að austan til höfuðborgarinnar, börnin tvö rekin út í vatn og 12 urriðar lágu í valnum eftir klukkutíma. Fjölskyldan haskaði sér síðan til Reykjavíkur þar sem aflinn fór beint á grillið þrátt fyrir að allir væru ferðalúnir. Þessi vötn eru einnig Veiðikortsvötn.
Af sjóbirtingi. SVFS (Selfoss) lét frá sér frétt nú í vikunni að enn væru menn að setja í fiska í Baugstaðaós og hjá Kollu í Veiðibúð Suðurlands fengust fregnir þess efnis að helsta svæði hennar, Laugardælir, væri enn að gefa og einn daginn fyrir skemmstu fengu tvær stangir tíu stykki þó að stutt væri stoppað. Sjóbirtingsfréttir hafa einnig borist frá Ytri Rangá og skv reynslu VoV er örugglega enn fiskur í helstu vötnum Vestur Skaftafellssýslu.









