Núna all mörg síðustu ár hefur það orð farið af sjóbleikjunni að hún sé í stöðugri hnignun. Og tölurnar hafa ekki logið. Hlýnun jarðar með ofveiði sums staðar í kaupbæti hafa verið sagðar helstu skýringarnar. En hvað ef…..
A síðasta ári sagði Þröstur Elliðason í samtali við VoV að svo virtist sem Fögruhlíðarós væri nokkurs konar lokavígi sjóbleikju. Þar væri enn mikið af henni og um það geta þeir vottað sem þangað hafa farið, sérstaklega þegar menn hafa miðað við að hitta á útfallið. En skoðun Vesturdalsá í Vopnafirði. Forðum ein albesta sjóbleikjuá landsins, a.m.k. miðað við þann stangarfjölda sem þar var.
Nú er það svo að Sir Jim Ratcliff á þarna margar jarðir og hefur leigt ána af öðrum eigendum. Haldið ánni fyrir sig og sína, en síðustu árin hefur lítið verið veitt. Þar er þó fylgst með öllu eins og í öðrum ám á vegum Six Rivers. Í ánni er teljari og hefur verið um árabil. Þar hafa menn fylgst með göngum lax og bleikju upp ána og gönguseiðum og hoplöxum í hina áttina. Við áttum samtal við Gísla Ásgeirsson framkvæmdastjóra Six Rivers á dögunum og hann sagði okkur einmitt að eitthvað gæti verið að gerast með göngur sjóbleikju, sem höfðu hrunið í ánni líkt og víðast annars staðar.
Teljarinn er neðan við miðja á og alltaf verið mikil bleikjuveiði neðan teljarans ekki síður en ofan hans. Sumarið 2024 gengu aðeins 90 bleikjur upp fyrir teljara, „svipuð tala og ekki var óalgeng veiði eftir þriggja daga túr í ána forðum,“ sagði Gísli. „Í fyrra brá svo við að 600 bleikjur fóru upp fyrir. Þetta er ekkert í námunda við það sem áður var, iðulega um og yfir 2000 að fara upp fyrir. En þetta er samt skemmtileg uppsveifla á milli ára og verður gaman að sjá hvað teljarinn segir okkur etfir komandi sumar,“ sagði Gísli.










