Slagveðrið hressti víða upp á veiðiskapinn

Alvöru hausthængur úr Bakka í Laxá í Dölum. Seinni árin er komin tíska að kalla þessa gaura krókodíla. Það virðist vera við hæfi. Myndin er fengin af FB síðu Hreggnasa.

Það var smá spenna í loftinu að fá nýjustu vikutölur frá angling.is, enda dúndraðist alvöru haustlægð yfir landið um miðbik vikunnar með tilheyrandi stórrigningu. Eftir alla þurrkana. Og jú, það var framför víða, hefði kannski orðið enn meiri ef að lægðin hefði ekki yfirtekið allavega tvo sólarhringa af umræddri viku. En þetta hjálpaði sannarlega.

Alls eru nú fimm ár komnar með fjögurra stafa tölu og þrjár til viðbótar eiga sjens að ná þeim áfanga. Aðrar eru víðs fjarri því að ná því að komast í 4stafa klúbbinn og eru margar þeirra þó fyrrverandi fastagestir þar. Ljós punktur er að tvær ár og eitt „svæði“ hafa toppað sig frá síðasta ári og eru það Haffjarðará, Laxá í Aðaldal og austurbakki Hólsár. Aðeins Selá virðist vera örugg með að gera það líka, mögulega Hofsá en spurningarmerkið þar er samt stærra.

Rennum nú yfir þær er sem eru í efsta laginu með tölur. Að venju, liggur manni við að segja, vantar Urriðafoss í jöfnuna. Hvernig sem á því stendur. En að vanda er fyrsta talan aftan við hverja á heildartalan miðað við kvöldið 6.9, næsta talan er vikuskammturinn og þriðja talan e heildartalan frá 2022.

Ytri Rangá/Hólsá V        2571 – 219    (5086)

Eystri Rangá                 1874 – 167    (3807)

Þverá/Kjarrá                 1169 – 119     (1448)

Selá                              1138 – 80      (1164)

Miðfjarðará                    1089 – 114     (1522)

Norðurá                          961 – 90        (1352)

Hofsá                              959 – 50        (1211)

Haffjarðará                      905 – 75        (870)

Laxá á Ásum                    597 – 52        (820)

Laxá í Aðaldal                   595 – 33        (402)

Elliðaárnar                        568 – 51        (798)

Víðidalsá                           529 – 62        (810)

Langá                                528 – 30        (1077)

Grímsá                               492 – 78        (827)

Jökla                                  450 – 6          (803)

Hólsá Austurbakki                405 – 20        (403)

Neðar í listann förum við ekki að sinni. Þar eru þó margar frægar ár, en kíkjum samt á Laxá í Kjós sem var sérlega illa leikin af þurrkunum og var lítið að gefa í nánast allt sumar. Í umræddri viku fór hún þó úr 245 löxum í 340 með 95 laxa viku. Og að venju er rígvænn sjóbirtingur mikilvægur meðafli. Þannig að veðurbreytingin hafði svo sannarlega áhrif og verði skilyrði hagstæð í september gætu bæði Laxá og fleiri ár sem hafa verið á slöku róli rétt eitthvað úr kútnum hvað tölur varðar.

Annars má af listanum lesa að Jökla spólar enn í sínu yfirfalli. Einnig má sjá að aðeins fjórar ár náðu þriggja stafa vikutölu og vikutölur Rangánna beggja heldur lakari heldur en verið hefur og þó að þær séu lang efstar í heildartölum þá eru þær langt frá því sem þær gáfu í fyrra. Enn er þó drjúgt eftir af veiðitímanum í þeim og jafnan kroppast þokkalega í þeim á haustin. Þannig að sjáum hvað setur með þær.