Yfirfallið í Jöklu er á undanhaldi og þá mun veiðin glæðast aftur. Þröstur Elliðason sagði í skeyti til VoV að Jökla hefði minnkað síðustu daga og kuldaspá næstu daga gæti hreinasað svæðið upp.

Jökla og hliðarár hennar voru á einstaklega góðu róli þangað til að yfirfallið yfirtók allt í byrjun ágúst, óvenju snemma. Nú réttir svæðið aftur úr kútnum, en til þessa hefur veiðin einkum verið í hliðaránum Kaldá, Fossá og Laxá. Því miður hafa tvær þær síðarnefndu verið vatnslitlar og ekki mikil stoð í þeim fyrir vikið. Kaldá hefur gefið, en hinar eru betri frá náttúrunnar hendi. Auk þess hefur afar lítð verið veitt og stundað frá því að yfirfallið byrjaði. En nú er það sem sagt á undanhaldi og hægt að bóka sér ævintýri að hausti. Nóg er af laxinum










