Þegar afskaplega rólegt er í laxveiðifréttum er skemmtileg tilbreyting að greina frá litlum hlutum sem skipta máli þegar stóra heildin er hálf sofandi. T.d. veiðisvæði sem sjaldan fer sérstökum fregnum af.

Til dæmis Gufuá í Borgarfirði, sem veida.is selur í. Hún er afar sérstök á í flórunni, svo vatslítil efra að í þurrkum nær hún varla að sytra milli „hylja“, en þegar neðar dregur gætir sjávarfalla og það býsna langt upp eftir, eftir því hversu hár straumurinn er. Hefur aðfallið áhrif langt upp með á og áin ýmist að renna upp eftir eða niður eftir, eftir því hvort er að falla inn eða falla út. Algerlega einstæð laxveiðiá í flórunni. Það sem margur veit ekki er, að efra hrygnir nokkuð sterkur laxastofn, en þangað fer laxinn ekki fyrr en hækkar í ánni í haustrigningum. Þangað til sveimar hann inn og út eftir sjávarföllum, líkt og sjóbleikja. Og þá tekur hann oft vel, enda alltaf að ganga og stoppa til að spá í aðstæður.
Gufuá hefur ekki verið upp á sitt besta í sumar, frekar en aðrar Borgarfjarðarár, en þeir sem þekkja hana hafa samt gert góða túra. Veida.is sagði t.d. frá því í byrjun vikunnar að þaulkunnugir hefðu landað fimm löxum og tveimur birtingum á einum degi. Sett í og séð fleiri. Sem sagt góður dagur við krefjandi aðstæður.
Fossá í Þjórsárdal, þar sem einnig má finna veiðidaga á veida.is er ekki svona vatnslítil eða skrýtin eins og Gufuá og þó að hún sé talin rakin síðsumarsá, þá er lax farinn að gefa sig. Cezary Fijalkowski var þar í morgun og landaði tveimur fyrstu löxunum, setti í fleiri þannig að fiskur er að byrja að stympla sig inn. Laxasvæðið nær frá hinum fræga Hjálparfossi og niður að ármótum árinnar við Þjórsá. Cezary varð laxa var bæði ofanvert og neðar í ánni. Góðir dagar væntanlega framundan þar.
Þá er farið að veiðast í Skógá, önnur rakin síðsumarsá þar á ferð. Og ekki nóg með það, komið nýja glæsilega veiðihúsið sem við greindum frá að væri í burðarliðnum fyrr í sumar. Þetta eru ekkert margir laxar enn sem komið er, en það er fiskur að ganga og hann kemur glæsilegur í hafi.










