
Vikutölurnar eru komnar hjá angling.is og þær eru alla veganna. Það má lesa af þeim vatnsleysið á vestanverðu landinu, en einnig að Norðausturlandið er nokkuð gott og Rangárnar hafa tekið aðeins við sér. Þá er ein á loksins kominn yfir eitt þúsund laxa.
Það er Ytri Rangá sem fór yfir eitt þúsund í lok þessarar veiðiviku, sem gaf 467 laxa, eða samtals þá 1085 stykki. Eystri er einnig með stíganda í veiðinni, vikan þar gaf 341 lax og annað sætið með 924 laxa.
Vatnsleysið á vestanverðu landinu er að verða, að mati kunnugra, á pari við sumarið 2019, en þá léku langir þurrkar árnar grátt, svo mjög að margur talaði um nátturuhamfarir. Þetta endurspegla auðvitað veiðitölurnar sem eru víðast hvar ekki til að hrópa húrra fyrir. Athygli vekur þó 110 laxa vika í Haffjarðará. En þó að þurrkar haldi niðri veiði á umræddu landssvæði, og búast megi við batnandi tölum þegar loks fer að rigna eitthvað, þá er ekki öll sagan sögð. Viðmælandi VoV nú í vikunni, maður sem hefur áratuga reynslu af laxveiðum, en vildi ekki láta hafa eftirfarandi eftir sér undir nafni sagði: „Ég ætla ekkert að rengja þá sem hafa talað um sterkar göngur víða í ám. Eflaust er þessi þurrkatíð að spilla veiðitölum, þó að ljósir punktar séu hér og þar, t.d. Norðausturhornið. Þá er Sogið líflegra nú en í fyrra t.d. En tilfellið er, að það er hreinlega helmingi minna af laxi í ánum heldur en fyrir segjum tuttugu árum. Þetta er helmingi minna og það munar um það.“
Jökla er ein af þeim ám sem skærast hafa skinið, en nú mun hægja þar verulega á þar sem yfirfall kom í ána þann 1.ágúst s.l. En skoðum nú hæstu árnar. Fyrsta talan er heildarveiðin miðað við 2.ágúst, tala númer tvö er vikuveiðin og í lokin skjótum við inn lokatölum síðasta sumars. Þar má glöggt sjá hversu langt þær eiga í land flestar hverjar.
Ytri Rangá 1085 – 467 (5086)
Eystri Rangá 924 – 341 (3807)
Þverá/Kjarrá 741 – 73 (1448)
Norðurá 649 – 61 (1352)
Haffjarðará 557 – 110 (870)
Miðfjarðará 556 – 147 (1522)
Selá 526 – 86 (1164)
Hofsá 515 – 132 (1211)
Jökla 429 – 104 (803)
Langá 397 – 41 (1077)
Elliðaár 375 – 32 (798)
Svo eru aðrar með minni afla. Sumar miklu minni afla. Margar frægar. Fyrr eða síðar mun rigna vel á vestanverðu landinu og þá verður fróðlegt að sjá hvað þessar ár eiga mikið inni. En þangað til…









