Það er ekki beinlínis allt að drukkna í „hundrað körlum“ en einhver slangur af 95-98 cm boltum. Í kvöld veiddist þó „hundrað kadl“ Um að gera að greina frá því.
Þetta er bara stutt frétt sem valt upp í kvöld. Veiðimaður var að kasta í veiðistaðinn Kerið í Ytri Rangá þegar hann fékk þunga og alvöru töku. Laxinn reyndist hafa tekið kirfilega og var landað, 101 cm og ef menn og konur skoða myndina þá er ljóst að þetta flykki er vel yfir 20 pundunum.










