
‘i fyrramálið verður fyrst ormnum kastað út í gruggugt Þjórsárvatnið við Urriðafoss. Þar hfa þegar raðað sér nokkrir boltalaxar og það verður kraftaverk ef fyrsti lax sumarsins verður ekki dreginn þá á land. Þannig hefur það verið síðustu ár og hvort sem að sumarið verður lélegt eða gott eða miðlungs, þá munu þeir nokkrir veiðast í fyrramálið.
Leigutakarnir Iceland Outfitters segja svo frá: „Á morgun er stór dagur hjá okkur en þá er fyrsti veiðidagur sumarsins 2022 sem er stór stund fyrir okkur sem standa að Urriðafossi. Tihlökkunin er gríðaleg eins og alltaf. Við munum síðan senda myndir ofl frá opnunardeginum.
Urriðafoss er eitt af allra sterkustu og bestu Laxveiðisvæðum landsinns, Þrátt fyrir að það sé engöngu veitt með 4 stöngum hefur Urriðafoss verið í toppsætum aflhæstu Laxveiðiáa landsinns frá því að við hófum stangveiði fyrir Urriðafossi. Veiðin á stöngina hefur verið frekar jöfn miðað við aðrar laxveiðiár á þessum árum en veiðitölurnar hafa verið að sveiflast á milli ca 800-1400 laxa ATH, veiðin takmarkast við kvóta sem er 5 laxar pr stöng pr dag svo vissulega væri oft hægt að veiða meira.
Stangveiðin í Urriðafossi getur verið krefjandi þar sem miklar vatnsveiflur eru í þjórsá og mis mikill litur er í ánni, en margir veiðimenn eru byrjaðir að læra á ánna og eru byrjaðir að ná ansi góðum tökum á veiðinni.
besti tíminn er júní og Júlí, stærstu göngurnar eru að venju fyrstu 2-3 vikurnar í Júlí, Þeir sem stunda Ágúst og Sept veiðina, láta vel að veiðinni en þá eru oft aðrir veiðistaðir að gefa frekar en þeir hefbundnu, eins og sandholt, skerpollur og vaður svo dæmi séu tekin.“









