
Laxveiðivertíðin er um það bil að hefjjast. Fyrsti reyndar kominn á land, en það er afar stutt í opnanir og þó að það gefi litlar vísbendingar um hvernig sumarið verður, þá er alltaf gaman að sjá og frétta af þeim dyrstu á lokametrum maimánuðar.
Skuggi er seldur sem silungasvæði út mai og lengur, en þar ar augljóslega laxavon eins og dæmin sanna. Fyrsta „opnunin“ er n.k. laugardag í Urriðafossi í Þjórsá. Hann hefur stolið senunni síðustu ár vegna þess að þar hefur veiði byrjað fyrr en í öðrum ám og alltaf verið eitthvað skemmtilegt að gerast. Löngu liðnir eru tíma fjölmiðlasirkusar á bökkum Norðurár 1.júní ár hvert. En Urriðafoss, við heyrðum í Hörpu Hlín Þórðardóttur sem er leigutaki ásamt eiignmanni sínum Stefáni Sigurðssyni. „Nei, við höfum ekki séð til laxa þar enda lítið verið að athuga með það. Hins vegar var nýverið kominn selur á svæðið, þannig að eitthvað hefur hann verið að elta,“ sagði Harpa. Það vita allir hvað selurinn var að vilja að Urriðafossi. Við spjall um Urriðafoss má bæta að þau hjón hafa stórbætt aðgengi að veiðistaðnum með veglegum og traustum stiga frá brún niður að veiðisvæðinu. Klöngur úr sögunni sem mun eflaust gleðja marga.
Oftast sést lax víða um þetta leyti og laxavakt Sporðakasta hefur staðfest fyrstu laxana í Norðurá og Laxá á Ásum, auk þess sem aðstandendur Laxár í kjós eru búnir að sjá þá fyrstu neðan við Kvíslarfoss, sem að þeirra sögn er frekar seint. Við athuganir laxavaktarinnar má bæta að VoV talar jafnan við marga og fær fréttir víða að. T.d. var hundaeigandi einn við ósa Elliðaána og sá stóran skvett. Hann sá ekki að það væri lax, en sá blika tvisvar á fiska rétt á eftir. Annar sem við þekkjum er búinn í tvígang sjá stóra skvetti úti fyrir ósi Korpu. Og fullyrti að það hefðu ekki verið æðarfuglar að stinga sér á kaf.
Urriðafoss opnar sem sagt á laugardaginn, Norðurá 4.júní og Blanda um líkt leyti að venju. Síðan koma þær koll af kolli. Og gaman verður að fylgjast með því hvernig þetta fer allt, Hafró hefur spáð allt að meðallagi góðu sumri, þeir hafa gert það áður, þannig að við verðum að sjá til. En alltaf kemur fiðringurinn upp á þessum tímapunkti þegar menn sjá staðfest fyrstu laxana.









