Gjöf frá Þórði Péturssyni

Æðarfossar í Laxá í Aðaldal

Seint á síðasta ári kvaddi Þórður Pétursson veiðilendurnar hérna megin og hélt yfir mörkin til hinna, hinu megin. Þórður, eða Doddi, jafnvel Doddi minkur, var einn snjallasti og þekktasti laxveiðimaður okkar tíma. Og hnýtingarmeistari í efsta gæðaflokki. Fæddur 1938, dáinn 2024. Hans heimavöllur var hin krefjandi Laxá í Aðaldal þar sem hann leiðsagði, veiddi og lifði sínu lífi áratugum saman.Og þekkti sína heimaá betur en lófana á sér.

Doddi.

Það er margs að minnast þegar hugurinn vitjar Þórðar, t.d. viðtal sem ritstjóri átti við hann sumarið 1983 og birtist í bókinni „Varstu að fá ‘ann? Í minningu Þórðar ætlum við að birta tvær veiðisögur uppúr viðtalinu. Hann á nú orðið:

-Þær eru sumar ótrúlegar, veiðisögurnar. Einu sinni fór Steingrímur heitinn í Nesi með mig í minkaleit út í Geithellisey. Hann setti okkur á land á eynni, en réri svo með stöng út á Vitaðsgjafa. Hann ætlaði að kasta á hylinn á meðan við eltumst við minkana. Ekki leið á löngu uns við sáum úr eynni  að Steingrímur hafði sett í lax. Hann hafði legið við stjóra, en er laxinn var kominn á, hífði hann inn og hugðist róa að vesturlandinu og landa laxinum þar.

-En þessi bardagi tók nokkuð aðra stefnu. Meðan hann var að komast undir árar, kom slaki á línuna og er hann byrjaði að róa ákveðið og skáhallt undan straumi, elti laxinn og jók ferðina uns hann tók mikla roku á eftir bátnum og stökk tignarlega yfir afturgaflinn. Skipti engum togum, að laxinn lenti í miðjum bátnum. Þetta var alls ekki það sem hann hafði ætlað sér og byrjaði hann strax að brjótast um ferlega. Steingrímur var nokkra stund að átta sig á því hvað gerst hafði, en síðan handsamaði hann laxinn, sem var nýgengin 14 punda hrygna. Þetta var 14.júní og fyrsti laxinn sem veioddist fyrir Neslandi það sumarið.

Laxá í Aðaldal, Brúarhylur
Laxá í Aðaldal, myndin tekin við Brúarhyl. Mynd, -gg.

-Öðru sinni vorum við Orri Vigfússon saman við Hrúthólmann. Hann var að veiða, en ég tók lífinu með ró uppi á háum bakka nokkru fyrir neðan þar sem Orri stóð. Aðdjúpt er þar við landið. Svo heyrði ég að Orri kallaði: „Hann er á,“ og ég reisti mig upp og fylgdist með. Ég var ekkert að flýta mér, Orri er vanur veiðimaður og það tekur sinn tíma að þreyta laxinn, En skyndilega kallar Orri til mín „Þórður, laxinn er að koma, vertu tilbúinn.“ Ég þreif þá háfinn og renndi mér fram af háum bakkanum niður að ánni í þann mund sem laxinn kom á mikilli ferð niður með bakkanum. Í þann mund stökk laxinn hátt upp úr vatninu og þá brá ég háfnum undir hann. Hann lenti í netinu og ég klifraði með hann upp á bakkann. Þetta var 10 punda fiskur og heldur óvenjulega að hlutunum staðið. Ingvi Hrafn fréttamaður var að veiða á hinum bakkanum og hló ofsalega að aðförunum.“

Svo mörg voru þau orð. Nú er ekki aðeins Þórður búinn að kveðja, heldur Orri líka. Sama má segja um Rafn Hafnfjörð sem þekkti vel til Þórðar og þessa litlu sögu skráði ritstjóri fyrir mörgum árum. Þar kemur við sögu þekktasta flugan sem Þórður hannaði, Laxá blá. En gefum Rafni orðið: -Mörg dæmi um að laxinn vilji eina flugu en ekki aðra koma upp í hugann. Til dæmis man ég þegar ég var að veiða í Laxá í Aðaldal fyrir löndum Núpa og Kjalar sumarið 1976, kom Þórður Pétursson veiðivörður í heimsókn. Hann var nýlega búinn að hanna flugu sem átti eftir að verða ein aflasælasta fluga landsins, Laxá blá. Hann gaf mér eina slíka, tvíkrækju númer 6.

Laxá blá með hárvæng, en upprunalega útgáfan var með fallegum fjaðravæng. Myndina eiga Gallerí flugur.

-Frá Laxá lá leiðin austur í Selá og það var ekki fyrr en að klukkustund lifði af síðasta morgninum að mér datt í hug að reyna þessa vinargjöf. Ég hafði ekkert veitt þennan morgun, en það var fiskur á um leið og ég reyndi Laxá blá. Er skemmst frá því að segja, að ég setti í tíu laxa á þessari klukkustund og landaði sex þeirra. Þeir voru allir smáir, utan einn sem var 11 pund. Ég kalla þessa veiði í skýrslum mínum: „Gjöf frá Þórði Péturssyni“.