
Viljum byrja á því að biðjast velvirðingar á skort á uppfærslum síðustu daga. Verið bilun, en allt í orden nuna. En vikutölurnar frá LV komu í vikunni sem var að líða og óhætt að segja að þeirra hafi verið beðið með meiri eftirvæntingu en gengur og gerist í laxveiðiheiminum og er þá þó mikið sagt. Eftir byrjun sem sló ekki í gegn nema í einni á þá biðu menn “bjargvættsins. En hann virtist ætla að skila sér seint. En svo hefur vissulega verið ansi líflegt víða og fiskur að ganga.
Samt er enn erfitt að henda reiður á styrk og stærð gangna, nema hvað í Elliðaánum voru met slegin í teljaranum þar sem laxar tóku númer, og voru oft margir í kistuni í einu. Hundruð laxa á stuttum tíma. Svakalegt fjör og mikið af laxi niður alla á frá teljara og niður að sjó. En hvers vegna erfitt að henda reiður á? Jú, regnguðirnir ærðust á vestanverðu landinu og margar ár margfölduðust og lituðust að auki í stíl. Og á austanverðu landinu, í hitabylgjunni, bakaði sólin skafla og jökla og þar voru fyrir vikið einnig miklir vatnavextir.

Enn er hitabylgjan fyrir Austan, en regnið að mestu einhverjir skúrir vestanlands og árnar sigið verulega. Sem sagt um tíma krefjandi aðstæður fyrir veiðimenn, auk þess sem menn gátu lítt gert sér grein fyrir laxamagninu. Heyrum t.d. hvað Haraldur Eiríksson leigutaki Laxár í Kjós og Hítará sagði í samtali við VoV. Og þetta sagði hann á meðan flóðin voru í hámarki.
“Satt best að segja hef ég ekki hugmynd um hver staðan er. Veit bara að það eru göngur og veiðin góð. Vikan okkar var með 136 laxa og það er besta vikuveiðin sem komið hefur síðan að ég tók hér við sumarið 2021. Hingað til hef ég getað stokkið upp á tvo kletta til að sjá stöðuna, en nú er því ekki að heilsa. Of mikið vatn og of skolað til að ég geti metið eitt eða neitt. Og svo er annað skemmtilegt við þá atburði sem hér eru. Það var mikið talað um skort á stórlaxi, en helmingur af veiðinni hjá okkur 8.-11.júlí voru 75 til 93 cm stórlaxar. Nýgengnir. Margt sem ég hef þó séð minnir á sumarið 2015 og þá gæti þetta farið vel. Svo má ekki gleyma endurkomulöxunum sem munu styrkja mjög göngurnar.”

Það er sem sagt lax að ganga, en aðstæður verið krefjandi. Komment eins og 80 á 3 dögum í Grímsá og neðri áin blá af laxi,” og “30 laxa holl í Laxá í Aðaldal og tugir laxa í flestum stöðum neðan Æðarfossa” að ógleymdum undrunum í Elliðaánum þar sem hálfur sólarhringur skilaði 572 löxum í gegn, sem samkvæmt útreikningum Laxfiska ehf stendur upp á einn lax á hverri mínútu umrædda tólf tíma. Og það var aðeins spennandi úrtak því göngur hafa verið nánast brjálaðar alla vikuna.
Þá er kominn gangur í Rangárnar, loksins,loksins samþykkja eflaust flestir því að þar byrjaði veiðiskapurinn afar rólega. Nú brosa hins vegar allir allan hringinn.
Toppurinn er án vafa í Þverá/Kjarrá, þangað streymir laxinn og vikan gaf 361 lax. Áin þar með komin í 911 en var á sama tíma í fyrra með 509 stykki. Var hún þó sú á sem helst var þá að standa sig í arfaslöku sumrinu í fyrra. Þá kom kippur í Urriðafosso g vikan þar gaf 177 laxa. 418 þá komnir á land þar, 470 á sama tíma í fyrra. Norðurá er í þriðja sætinu með 380 laxa eftir 119 laxa viku. Á sama tíma í fyrra var hún með 347 skráða. Miðfjarðará er í gírnum, vikan þar gaf 136 laxa, 279 í það heila en 156 á sama tíma í fyrra. Elliðaárnar voru og fantagóðar með 124 laxa viku, 208 þá í það heila á móti 211 á sama tíma í fyrra. Loks skulum við taka Laxá í Kjós, áður en við vísum á angling.is sem er með miklu meira af svona statistic að venju. En Laxá í Kjós, “Kjósin” skilaði 136 laxa viku og var þá komin í 195 laxa á móti 137 á sama tíma í fyrra. Norðausturhornið er ekki komið með sínar ár í efstu sæti listans, en eiga vafalaust eftir að gera það, alls staðar góðar göngur, en aðstæður enn krefjandi þar sem hitinn bræðir enn snjó og jökla.
En við vorum að tala um hér ofar um erfiðleika að henda reiður á gang mála þrátt fyrir líflegar göngur síðustu daga. Það er nefnilega eitt sem Haraldur minnti okkur á, að mjög oft í gegnum tíðina hafa komið göngur um mitt sumar…og svo búið. Lítið sem ekkert bæst við. Veðrur það þannig nú eða öðru vísi, eins og Haraldur minnti á téð sumar 2015, þá var laxinn að ganga út sumarið og jafnvel enn að bæta eitthvað í um haustið. Það sumar var fínasta sumar í Kjósinni og víðar.
Við þetta má bæta, að margar ár sem með slatta af stórum sjóbirtingi sem meðafla. Alltaf mikið varið í birtinginn, sem gefur laxinum nákvæmlega ekkert eftir sem sportveiðifiskur.









