Tveir fyrir einn – eða einn fyrir tvo

Feðgarnir með laxinn gráðuga...og feiga.

Hjálmar Árnason var ásamt Kristjáni syni sínum í Urriðafossi fyrir fáeinum dögum. Hann sendi okkur skemmtilega sögu af skrýtnu atviki sem henti þá feðga. Hér kemur sagan:

-Í Urriðafossi , aðalsvæði, eru í raun bara tveir öflugir veiðistaðir fyrir fjórar stangir.  Fyrir vikið verða menn að vera tillitssamir með afbrigðum.  Var þar þann 7. júní, með syni mínum, Kristjáni.  Þrátt fyrir góða tilburði var flugan ekki að gefa neitt.  Skelltum við báðir okkur í maðkinn með flotholti.  Þar sem fossinn glumdi á hylnum, Huldu (neðri pallurinn) mátti sjá tvö flotholt vagga rólega með girnilega kássu á öngli undir sér.
Á myndinni má sjá tvær línur liggja lóðbeint ofan í kokið á laxinum.
“Stjáni minn, dragðu upp.  Hann er á hjá mér.”. Ekkert fór á milli mála að hraustlega var tekið í stöngina hjá mér.  Harður slagur í vændum.   “Nei, dragð þú upp, pabbi.  Hann er á hjá mér.” Og ekki leyndi sér að báðar stangir voru kengbognar með föstum kippum.  Hafði fiskurinn flækt saman línum?  Hafði hann tekið hjá öðrum og flækt sig í hinni línunni?  Vorum við báðir með fisks á?  Hófst nú náin samvinna feðga.
Til að  landa  þurfti á síðasta spretti að koma fiskinum/fiskunum í gegn um mikinn flaum úr einni fossbununni.  Mikill slagur en hægt og rólega nálgaðist lónbúinn/-búarnir óvini sína.  “Stjáni, hlauptu og náðu í háfinn, snöggur.”  Meðan sá yngri hentist upp klettana til að sækja háfinn stóð sá eldri (undirritaður) með tvær kengbognar srangir í höndunum.  Fannst tíminn líði ofur hægt en svo birtist Stjáni með háfinn góða.  Skömmu síðar var 74 sm baráttujaxl allur (n.b. Stjáni er um 180 sm).  Einn fiskur en ekki tveir.
 En hvor hafði veitt fiskinn?  Hvor okkar átti flækjulínuna?  Svarið var ofureinfalt.  Þessi sterki og góði fiskur KOKGLEYPTI BÁÐA MAÐKANA.  Segja má að feigum hafi ekki verið forðað í þetta sinn.  Á myndi má sjá báðar línurnar liggja niður í iður fisksins.  Og sigursæla feðga með laun erfiðisins.  En hvernig bóka menn svona?  Hálfan fisk á mann?