„Bjargvætturinn“ mættur til að bjarga málum?

Mynd úr teljaranum í Skuggafossi í Langá...

Í samtali við Einar Óle Pedersen formann veiðifélags Langár á dögunum, kom fram að farið væri að fjölga búkum í teljarakistunni í Skuggafossi. Nú hefur heldur betur bætt í og margir andvarpa og fagna „bjargvættinum“, þ.e.a.s. smálaxinum. Þó er engan vegin klárt hvað þessi ganga verður sterk.

Svipaðar fréttir hafa borist að undanförnu frá ám eins og Hítará, Elliðaánum og víðar. „Bjargvætturinn“ að mæta. Þessi spenna minnir svolítið á gamla frásögn, sanna mjög, þegar eitt sumarið í Langá stefndi hraðbyri í að vera mjög lélegt. Það var áður en að áin var sameinuð í eitt leigusvæði og Spánverjar voru fyrstu vikurnar á Langárofossi og gistu í „ensku húsunum“. Ingvi Hrafn var þá með miðsvæðin sín, en fylgdist vel með þeim spænsku og var vinur þeirra. Hann kom niður eftir til þeirra á hverju flóði og allir horfðu út á flóann fyrir neðan Sjávarfoss, allir að bíða eftir „bjargvættinum“, smálaxinum. Eftir margar ferðir gerðist það síðan að Ingvi kom auga á smálax skjótast upp fossinn. Hann benti ákaft og æsti sig, „þarna kom einn“, síðan skaust annar upp og Ingvi æpti, „það er komin ganga, það er komin ganga!“ Allir kættust og urðu spenntir og bjartsýnir aftur, en þriðji laxinn lét á sér standa. Reyndar komu göngur seinna, en sumarið endaði sem „lélegt“. Skemmtileg saga samt um ódauðlega bjartsýni veiðimanna. Alltaf skulu þeir finna eitthvað jákvætt! VoV kynntist þessum Spánverjum á sínum tíma og þetta var eðalfólk og flottir veiðimenn.

En að Langá, við fundum status á FB sem sagði þetta: „Loksins er laxinn mættur í Langá að einhverju ráði en um 100 fiskar hafa gengið upp teljarann í dag en stór hluti gengur líka um Skuggafoss. Sömu sögu er að segja úr Elliðaánum, miklar göngur síðasta sólarhring þannig að nú ættu laxveiðimenn að fara að kætast! Þessi straumur er byrjarðu að skila fiski!“

Þetta með Skuggafoss er reyndar svipað og t.d. Ennisflúðir í Blöndu, upp Skuggafoss og upp Ennisflúðir fór laxinn alltaf áður en að fiskvegir komu til hjálpar. En að segja að annað eins gangi upp þessar ströngu flúðir og fari auðveldu leiðina nú til dags er náttúrulega óskhyggja. Mestar líkur eru á því að flestir eða allir velji auðveldu leiðina. En það breytir því ekki að „bjargvætturinn“ er að ganga eitthvað núna. Sumir myndu segja frekar seint, aðrir frekar snemma, en allt fer það yfirleitt eftir sjávarföllum.

Hvað sem öllu líður, þá er komin ný breyta í lélegt sumar hingað til. Eins og spáð hafði verið var lítið af stórlaxi og júni yfir höfuð svakalega daufur þó að Facebook hafi verið löðrandi í skemmtilegum veiðisögum. Vonum það besta núna. Alltaf er von nefnilega.