„Ég hef aldrei verið eins bjartsýnn á ævinni og er ég nú ekki vanur að vera með stórar yfirlýsingar. En þrátt fyrir yfirfall í byrjun ágúst þá vorum við ekki langt frá þúsund löxum og ýmislegt sem við sáum gefur okkur tilefni til þessarar miklu bjartsýni fyrir komandi vertíð,“ sagði Þröstur Elliðason leigutaki Jöklu og hliðaráa í samtali við VoV.
„Ýmislegt sem við sáum,“ segir Þröstur. Það var t.d. ævintýraleg gönguseiðatraffík sem sást og mældist í fiskveginum við Steinboga, á fínum tíma síðasta sumar. Einnig gríðarlegur fjöldi smálaxa í aflanum á sama tíma og smálaxagöngur voru víðast hvar ekkert sérlega afgerandi á arfaslöku sumri. „Við hefðum viljað sjá meira af stórlaxinum, en á móti komu gríðarlegar smálaxagöngur. Smálax af öllum stærðum, en sérlega mikið af 4-5 punda hængum. Milli 6-700 í veiðitölunum.Maður fær eiginlega bara vatn í munninn við tilhugsunina hvað bíður í hafinu: Tveggja ára hrygnur af sama árgangi og smálaxaganga til samræmis við gríðarlega útgöngu seiða s.l. sumar. Á sama tíma er vatnsstaða í Hálslóni einhver sú lægsta miðað við mai frá upphafi mælinga, 3-4 lægsta held ég, og það gefur manni alvöru vonir um að það komi ekki yfirfall fyrr en kannski í haust, að við fáum ágúst heilan og óskiptan, kannski september líka“ bætti Þröstur við.

Til upprifjunar þá veiddust 933 laxar í Jöklu í fyrra, sem fór á yfirfall 4.ágúst. Metveiði í ánni er frá 2024, þegar 1163 laxar veiddust og þá kom yfirfallið seint. „Ef við hefðum getað mannað stangirnar betur undir lokin þá hefðu við eflaust getað gefið ánni nýtt met,“ segir Þröstur.
Vatnasvæði Jöklu er gríðarlega langt og víðfemt og enn eru menn að þreifa sig áfram eftir því sem laxinn sækir lengra. Hliðarár lengst inn á Jökuldal hafa verið virkjaðar til framleiðslu, enda með góð búsvæði sumar hverjar. Þar byrjaði allt með sleppingu sumaralinna seiða og hefur kúfurinn á velgengninni aukist ár frá ári og hvert sumar verður vart við laxa æ ofar í vatnakerfinu. Efsti veiðistaður á efra svæði Jöklu, Jöklu 2, er Tregluhylur. Þröstur bætir við að lokum að til standi í sumar að selja tvær tilraunastangir á mjög svo hóflegu verði þannig að áhugasamir geti kannað svæðið þar fyrir ofan, ekkert þar fyrir ofan sem stoppar laxinn og þeir hafa sést þar efra. Þar eru eflaust að finna glæsilegar ósnortnar veiðilendur.










