
Þó að laxgengd hafi glæðst eitthvað síðustu vikuna eða svo, þá er sem betur fer fleira fiskur en lax. Við kíktum á heimsíðu Veiðivatna og þar eru menn og konur að venju í veislu. Margir silungar og stórir í bland. Sá stærsti, urriði upp á hart nær 16 pund!
Fyrstu fjórar vikurnar gáfu alls 14104 fiska, 7018 urriða og 7086 bleikjur. Þetta er nú bara ansi gott og hvað sem línurit segja um betra eða lakara en einhvern tímann einu sinni, þá er þetta Paradís. Náttúrufegurð með afbrigðum, en þetta er samt sem áður að stórum hluta tilbúin veiði því vötnin fóstra ekki stóra stofna og eldisker niðri í byggð hjálpa til. Ekki sagt svæðinu til hnjóðs, en svona er þetta bara.

Urriðinn var einu sinni aðalfiskurinn á svæðinu, eiginlega sá eini, en svo komu færi fyrir bleikju að smjúga þarna inn fyrir einhverjum áratugum. Komu úr Tungnaá að því að talið er. Nokkur vötn eru nú fyrst og fremst bleikjuvötn og flest þeirra ofsetin, sem sést á því að meðalþungi bleikju úr vötnunum er 0,37 kg, eða innan við pundið. Stærsta bleikjan er á sjötta pundið, 2,80 kg en vænar bleikjur eru ekki margar. Samt ætar og frábærar á pönnu og grill og því vinsælt að skreppa í bleikjuvötnin og hafa nokkrar með sér heim. Snjóölduvatn er sem fyrr aðal bleikjuvatnið með 3529 bleikjur.
Urriðinn er samt og var alltaf aðalfiskurinn. Hann var þarna til nytja löngu áður en að heimamenn fóru að styðja við veiðina með sleppingum. Veiðivötn voru víðfræg veiðislóð löngu fyrir tíma bleikjunnar. Þyngsti urriðinn í sumar mældist 7,76 kg, eða vel á sextánda pundið. Hann kom úr Hraunvötnum eins og svo margir áður af þeim stærstu. En það koma boltar úr mörgum öðrum vötnum. Sem fyrr er Litlisjór aðal veiðivatnið með 3668 urriða og Stóra Fossvatn er næst með 1090 stk.









