Öldur að lægja á Norðausturlandinu

Silungapúpa í kjaftviki 79 cm hrygnu.

Veiðifélagið/leigutakinn Hreggnasi gerði nýverið grein fyrir því að leigusamningur um Svalbarðsá í Þistilfirði hefði verið endurnýjaður, allar götur til og með 2036. Við það má mæta að hópurinn sem hefur farið með veiðirétt í Ormarsá á Sléttu endurnýjaði samning sinn fyrir skemmstu til 10 ára. Öldur sem voru að byrja að ýfa sig á svæðinu hafa því lægt.

Það var nefnilega frétt í gangi fyrir nokkrum vikum að Six Rivers Iceland, félag Jim’s Ratcliff hefði lagt fram tilboð til tíu ára í Svalbarðsá. Það vakti athygli því það er ekki sérlega algengt að boðið sé í laxveiðiár sem eru ekki beinlínis í útboði. Við svo búið mátti reikna með viðbrögðum frá Hreggnasa og nú lliggur það fyrir, nýr langur samningur. Þegar þeim samningi lýkur verða liðin 30 ár frá því að Hreggnasi kom fyrst að Svalbarðsá, en félagið var fyrst með ána árið 2006. Og talandi um Sir Jim og öldugang á Norðausturhorninu  það hefur ekki farið leynt, áhugi Six Rivers á því að koma sér inn í Ormarsá á Sléttu. Þar hafa leigutakar heldur ekki setið auðum höndum því, eins og getið er, hefur hópurinn endurnýjað til tíu ára.

Það hefur annars ekki verið mikið um að veiðisvæði hafi skipt um hendur. Helst þó að nefna Litluá og Skjálftavatn í Kelduhverfi, en Matthías Þór Hákonarson veiðileyfasali á Akureyri tekur þar við sem nýr leigutaki. Matthías er stórtækur á Norðurlandi og er m.a. með Mýrarkvísl á leigu.