Misskipt landsins gæðum þessa daganna

Aldeilis snillingar og reynsluboltar þarna á ferð. Þórarinn Sigþórsson (Tóti tönn) og Egill Guðjohnsen með fallegan lax úr Urriðafossi. Myndin er fengin af vef IO

Hvert laxveiðisvæðið af öðru er að opna og landsins gæðum er misskipt. Þetta hefur verið hart vor, sérstaklega á norðanverðu landinu. En ljósu punktarnir eru, að veðrið er að skána og það er eitthvað að ganga af laxi, annað en sagt verðurfrá nágrannalöndum okkar.

Urriðafoss byrjaði með flottri opnun og síðan hafa flestir dagar gefið 8-10 laxa. Einn dagurinn var óvenju brattur með 21 lax. Þetta er allt grálúsugur tveggja ára lax. Flott byrjun og vonandi að framhaldið verði í stíl. Norðurá hefur líka byrjað betur en menn þorðu að vona eftir slök sumur. Allt í góðu þar enn sem komið er. Og þær fregnir bárust í dag að fyrstu laxarnir hefðu sést í Laxá í Dölum og enn fleiri í Kjósinni. Svo greindu Sporðaköst frá því að ríflega 100 cm hrygna hefði veiðst í Ölfusá. Lítið var um smáatriði í þeirri frétt. En flottar myndir.

Brátt opnar Þverá og svo Kjarrá, en norðan heiða átti að opna Blöndu en veðrið gerði það að verkum að hún var ekki allra eins og sagt er, hún var í raun engra. Enginn lax veiddist. Í samtali við Guðmund Rúnar Halldórsson formann veiðifélags Blöndu og Svartár kom fram að aðstæður eru enn erfiðar. „Það var svakaleg úrkoma og allir lækir urðu eins miklir og þeir geta, það er enn snjóbráð í ánni og enn talsverður snjór efra. Ég held að það taki okkur nokkra daga að vinda ofan af þessu hreti. En Höski (Höski lögga) var búinn að sjá lax áður en þetta brast allt á, þannig að verðum við ekki að vera bjartsýn,“ sagði Guðmundur.

Sem sagt, nú fylgjumst við með framvindunni. Erlendis, t.d. í Noregi og á Bretlandseyjum virðist vera um hreina hörmung að ræða. Ísland er kannski síðasta vígið, en stjórnmálamenn virðast til í að fórna því fyrir krónur og aura með því að gefa norskum eldislaxakörlum frítt spil hér.