Þetta er Nuno Alexaandro Bentime með glæsilegan lax úr Norðurá í morgun. Myndina tókk leigutakinn Rafn Valur Alfreðsson
Of snemmt að segja, passa sig á of mikillli bjartsýni og alllt það, EN: Byrjunin á laxveiðinni nú í vor er að lofa góðu.
Urriðafoss fór til dæmis vel af stað og Norðurðá vildi ekki vera eftirbátur. Þar komu 19 lOf saxar á land æi dag. í Norðurá var þessi hefðbundni tveggja ára lax, góður slatti þeirra reyndar um og yfir 80 cm. Sá særsti 84 cm. Það taldist til tíðinda að einn smálax heiðaraði veiðimenn með nærveru sinni. Slíkt er sjaldgæft í opnunum, sérstaklega svo snemma sumars, en ekki ómerkilegri veiðimaður en Björn heitinn Blöndal sagði það vita á mikil smálaxaár. Við höfum heyrt þetta oft, en ekki alltaf gengið eftir. En það gerði það í gamla daga og sama má segja um að ef hængur veiddist snemma sumars, þá vissi það líka á stórar stórlaxagöngur. En svo hefur það heldur ekki alltaf gengið eftir. En hvað kenningum líður, þá líður mörgum eflaust bara býsna vel, endaa er laxavertíðin að byrja vel og það var nú bara alls ekki gefið fyrirfram. En tíminn sker úr. En nú byrja þær hver af annarri, Blanda næst ef okkur ratast rétt til með minni. Þar er búið að sjá’ann, Höski lögga með sín arnfránu augu kom auga á laxa þar fyrir skemmstu. Blanda má alveg fara vel af stað, verið smá öldudalur þar síðustu árin.