Hvaða græja á að vera í pakkanum? Kostað

    Falleg kvöldstemming í vatninu.

    Fátt þykir veiðikörlum – og konum skemmtilegra en að fá veiðigræjur í jólagjöf. En hvað er til ráða fyrir gefendur, sem hafa ef til vill ekki hugmynd um hvaða græju eigi að festa kaup á?

    Ingólfur Kolbeinsson í Vesturröst er búinn að vera jólasveinn VoV það sem er desember og hann er ekki með neina eina lausn í málinu. En hann og starfsfólk hans reyni að hjálpa til með hugmyndum sem má sjá undir jólagjafahnappi á forsíðu Vesturrastar, vesturrost.is. Fjöldi veiðifólks girnist hluti/græjur sem það þyrfti jafnvel ekki á að halda. Nýjungagjörnu típurnar. Svo koma kaupendur/gefendur í búðina með hugmyndina beint frá væntanlegum þiggjanda, en þá er ekkert sem kemur óvart í pakkanum og mörgum finnst það miður. „Þá komum við að einni pottþéttri lausn,“ segir Ingólfur, og bendir á Gjafabréfið sem sjá má undir nefndum forsíðuhnappi. „Það getur verið upp á allt frá 5000 krónum og upp í 200 þúsund. Þiggjandi kemur síðan með bréfið í búðina og verslar eins og enginn sé morgundagurinn. Þetta er mjög vinsæl svona „leið út“ fyrir marga sem vilja gefa veiðigjöf, en vita ekki hvað þeir eigi að kaupa,“ bætir Ingólfur við.