107 cm birtingur búinn að skrá sig

Þessi hefur marga fjöruna sopið!

Ár á Suðurlandi eru eins og víðar orðnar æði vatnslitlar, nema náttúrulega Rangárnar sem breytast lítið þó að þurrrkar standi lengi. En ár eins og Þverá, Skógá, Vatnsá og fleiri eru afar vatnslitlar. Það kemur þó ekki í veg fyrir göngur.

Teljarinn í Vatnsá. Ath að þetta var tekið í fyrrahaust, huggulegri vatnsstaða þarna en nú. Samt er fiskur að ganga.

T.d. Vatnsá. Afar lítið vatn þar og veiði erfið, nema í vatninu, Heiðarvatni sem er mikil fiskikista. Vatnsleysið hefur þó komið helstu fiskitegundum árinnar breytilega fyrir sjónir. Á meðan laxinn sýnir sig lítt og hangir eflaust enn í hinni skoluðu Kerlingardalsá, hafa verið líflegar sjóbirtingsgöngur. Til marks um það er teljari ofarlega í ánni, en nokkrir tugir birtinga hafa gengið þar á hverri nóttu að undanförnu. Margt af birtingnum fer beint upp í vatnið, en góður slatti hefur verið í ánni. Erfitt þó að kljást við hann þar í vatnsleysinnu og sólfarinu. En það er athyglisvert að birtingurinn sé að ganga af krafti. Flestir vænir vel og einn sem kom í byrjun vikunnar var sannkallaður hvalur, 107 cm takk fyrir. Miðað við 100 cm/20 punda viðmiðið á laxinu að því meðteknu að birtingurinn er að öllu jöfnu þrekvaxnari heldur en laxinn þá er óhætt að sleppa hugmyndarfluginu lausu….hversu þungur er þessi mikli höfðingi? Við gætum verið að tala um 25-28 pund. Hann hefur ekki sést í ánni, er líklegast kominn upp í vatnið. Þar gætu veiðimenn komist í tæri við hann því bestu sjóbirtingsstaðirnir eru að mestu þekktir.