
Það er alltaf gaman að geta sagt frá nýjum svæðum sem geta gefið lax, sérstaklega þegar þau eru oftast frekar ódýr þangað til að þau hafa sannað sig. En þau hafa oft gert það á lága prísnum….við höfum í gegnum tíðina sagt frá svæðum eins og Selfossbakka Olfusár og Gufuá, núna kemur nýtt svæði.
Á vefsvæði Kolskeggs segir m.a.: -Neðri svæði Austurbakkans er falin perla þar sem oft gefst ævintýrlaleg veiði þegar göngurnar ganga í gegn. Á hverju ári ganga tugir þúsunda laxa í gegn um þetta svæði á leið sinni ofar á vatnasvæðið og að auki er þetta mjög gott sjóbirtingssvæði. Veiðisvæðið er langt eða hátt í 12 kílómetrar og því vel rúmgott um stangirnar fjórar.
Hólsá breytir sér ört niðri á söndunum og myndast þar álar sem laxinn leitar í á göngu. Menn þurfa að vera duglegir að lesa í ána og leita á sumum stöðum. Í Hólsá hefur alltaf gengið sjóbirtingur og hér áður fyrr veiddist líka stöku lax. Eftir að farið var að sleppa seiðum í stórum stíl í Rangárnar og einnig í Hólsána sjálfa hefur laxveiðin stóraukist og í dag er Hólsá á meðal betri veiðisvæða landsins.“









