Nú þessi dægrin þegar lítið er að frétta af laxveiðiánum annað en að þær séu fullar af laxi sem vill ekki taka, þá er gaman að segja frá því að það eru undantekningar. Ár sem eru ekki eins háðar slæmum skilyrði og t.d. Sogið.

Já einmitt Sogið. Vatnsmikil og hrynur ekki í vatnshæð þrátt fyrir langa þurrka og er furðu jöfn í hitastigi þrátt fyrir þetta endalausa sólfar í seinni tíð. Það hefur verið líflegt í Soginu að undanförnu. T.d. í Ásgarði. Þar var Kjartan Antonsson, þekktur fyrir að hanna og hnýta hina gjöfulu Zeldu, með nokkra erlenda veiðimenn á sínum snærum um helgina. Hópurinn landaði á annan tug laxa og missti einnig slatt. Flesta á Zelduna, en einnig nokkra á aðrar flugur. Mest voru þetta fallegir og pattaralegir smálaxar, en tveggja ára laxinn í ánni er einnig stórvel haldinn.

Fish Partner er með Þrastarlund og þar hafa margir sem skotið hafa að undanförnu fengið laxa, landað, misst og fengið tökur. Sama má segja um Bíldsfell og Syðri Brú. Við þetta má bæta að þó að laxinn hafi aðallega verið í sigti veiðimanna að undanförnu, hafa nokkrar stórar bleikjur verið fallegur meðafli.










