Laxá lúrði á ríflega meterslaxi

Hilmar með drjólann. Myndina fengum við af FB síðu Laxár í Aðaldal.

Stóru drekarnir, 100plús, hafa verið að stympla sig inn síðustu vaktirnar, tveir í Borgarfirðinum eins og við greindum frá fyrr í kvöld. Laxá í Aðaldal lúrði og á einum í viðbót.

Það var Hilm­ar Hans­son, sá mikli laxaskelfir, sem fékk þetta 101cm tröll ­í Miðfosspolli, sem sjá má á myndinni. „Hann sýndi hon­um þrjár smá­flug­ur og kom stór­lax­inn upp í tvær þeirra án þess að taka. Þá setti hann sex sentí­metra Sunray og það virkaði svona líka vel,“ eins og segir í status á FB síðu Laxár í Aðaldal.