Ef „tröll“ miðast við 100 sentimetrana þá má segja að tröllin hafi verið að raða sér inn í Borgarfirðinum. Í dag veiddist tröll í Grímsá og í gær annað í Kjarrá.
Veiðileyfasalinn Hreggnasi greindi frá því að 100 cm hængur hefði veiðst í Grímsá í morgun, í hyl 580 sem mun vera ofarlega í ánni, djúpt inni í Lundareykjadal. Eins og sjá má á myndinni er laxinn örlítið farinn að taka á sig lit. Þá veiddi erlendur veiðimaður 102 cm hæng í veiðistaðnum með fallega nafninu Hellsgate í Kjarrá og egndi fyrir tröllið með smáum Haug.
Þetta eru tveir í hópi stærstu laxa sumarsins, en sá stærsti til þessa var 110 cm og veiddist í Blöndu.










