Nam Products kaupir Einarsson Fly Fishing

Nam Products hefur nú keypt fluguhjólaframleiðslu Steingríms Einarssonar, þar sem gæði hafa verið rómuð um árabil. Myndin er fengin af FB síðu Steingríms.

Þau tíðindi hafa orðið að Skandínavíska veiðivörufyrirtækið Nam Products hefur fest kaup á íslenska fyrirtækinu Einarsson Fly Fishing og mun NP hér eftir sjá um sölu á hinum víðfrægu fluguhjólum frá Einarsson.

Steingrímur Einarsson stofnandi og nú fyrrverandi eigandi Einarsson Fly Fishing skrifaði eftirfarandi færslu á FB síðu sína: „Nám products hefur nú keypt vörumerki Einarsson Fly Fishing og munu hér eftir sjá um sölu á Einarsson hjólunum. Það má segja að það séu blendnar tilfinningar þessa dagana sem bærast með mér en á sama tíma er ég afskaplega sáttur við kaupandann. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu vinum og viðskiptavinum sem hafa stutt mig í gegum tíðina en nákvæmlega fyrir 19 árum voru fyrstu hjólin smíðuð.“

Í skilaboðum sem Nam Products sendir lesendum sínum á vefsíðu sinni segir m.a.: „Við gætum ekki verið spenntari að greina frá þessum samruna þar sem gildin sem hafa fylgt hönnun Einarsson fluguhjólana hafa verið lýsandi í allri hönnun vara okkar. Þar er reynt að ganga skrefinu lengra í hönnun, til samræmis við þá línu sem fylgt er í Skandinavískri hönnun. Við gætum ekki hugsað okkur betri viðbót við vörulínur okkar og erum ákveðnir í að halda þeim háa standard sem Einarsson og Nam hafa til þessa viðhaldið og þróað með það að markmiði að gera enn betur. Þá er mikil tilhlökkun hjá okkur að kynna í náinni framtíð hvað samruni fyrirtækja okkar muni skila.“ En þess má geta að Nam Products framleiðir helst flugustangir og línur.