
Vikutölur angling.is eru komnar á vefinn hjá þeim og sjá má þar ákveðinn gang mála. Veiði er yfirleitt að aukast og víða að berast fregnir af sterkum smálaxagöngum. Ár Norðanlands taka þó hægar við sér, enda fá þær smálaxinn yfirleitt dálítið seinna en árnar fyrir sunnan. En Þverá/Kjarrá er hástökkvarinn.
Já, Þverá/Kjarrá var einkennilega róleg í júní, einkum í samaburði við nágrannaána Norðurá sem að var að sýna umtalsverðan bata frá síðasta sumri. En Þverá/Kjarrá var með lang hæstu vikutöluna að þessu sinni, heila 179 laxa og fór upp í 297 laxa og heldur þriðja sætinu með glæsibrag. Samt sem áður er áin enn á annað hundrað löxum lakari en á sama tíma í fyrra. Efsta áin Norðurá var með 82 laxa viku sem taldi samtals 348 laxa það sem af er. Dalaði frá fyrri viku og er nú allt í einu komin á svipað ról og á sama tíma í fyrra. Urriðafoss er eins og síðast í öðru sæti með 323 laxa eftir 98 laxa viku. Þó að þessi 4 stanga veiðistöð sé óumdeilt að gefa hörkuveiði þá er alltaf miðað við eitthvað sem var betra og Urriðafoss hefur oftast verið mun betri á þessu stigi vertíðar. Munar nú á annað hundrað löxum. En hlutirnir geta verið fljótir að breytast.
Og það gera þeir svo sannarlega þegar smálaxagöngur birtast og eru „fjölmennar“. Nú í miðri viku voru Elliðaárnar t.d. komnar með um 800 skráningar í teljarann og neðan við hann var lax við lax og á hæðum í Sjávarfossi. Svipaðar fregnir berast víða að á vestanverðu landinu og göngur fara vaxandi í öðrum landshlutum. Eftir því sem fregnir herma.

En það er tvennt í þessu. Í fyrsta lagi hafa þessar miklu og sterku göngur ekki raungerst í veiðitölum, enda þekkja veiðimenn það að best sé að eiga við hlutina þegar nokkur ró er komin á gönguna. Þekkja menn að göngur vaða í gegnum hylinn þar sem þeir eru að kasta og lítið þýðir að hlaupa á eftir torfunni og þrákasta. Laxinn lítur ekki við agninu. Og svo er hitt. Þó að það líti bráðvel út núna með þessar sterku göngur að skila sér, er miklu frekar brýn þörf á að fylgjast með og skoða framhaldið. Vissulega munu koma flottar hrotur í framhaldi af núverandi laxgengd, en dæmin eru því miður mýmörg að þessi straumur skili einmitt góðum göngum og svo kemur lítið í viðbót. Þess vegna er fínt að hafa bjartsýni, en að sama skapi að halda löppunum niðri á jörðinni.
En hvað sem öllu líður, það hefur orðið dálítil breyting á topp tíu eins og vænta mátti og breytingar eiga eftir að verða enn á næstu vikum. Sex efstu árnar eru á sínum stað, en Selá, Elliðaárnar og Ytri Rangá koma allar ferskar inn eins og nýtíndir ánamaðkar, þó eru þær tvær síðasrnefndu ekki jafn sterkar og þær voru á sama tíma í fyrra. Hvað svo sem koma skal. Svo skulum við reikna með því að ár eins og Laxá í Kjós, Langá og fleiri geri sig meira gildandi á næstunni þegar smálaxinn fer að taka betur.
Hér eru topp tíu. Fyrri talan er heildartalan miðað við 5.7, seinni talan veiðin síðustu vikuna.
Norðurá 348 102
Urriðafoss 323 98
Þverá/Kjarrá 297 179
Haffjarðará 166 73
Blanda 119 50
Eystri-Rangá 113 71
Selá í Vopnafirði 109 —
Elliðaárnar 99 — )
Miðfjarðará 95 46
Ytri-Rangá og 94 —
vesturbakki Hólsár .
Eins og sjá má, vantar þrjár vikutölur þarna inn. Lesendur geta skoðað sambærilegar upplýsingar um fleiri ár inni á angling.is.









