
Veiði hófst í Blöndu í morgun og gekk veiði furðu vel miðað við að aðstæður voru mjög erfiðar. Klukkan níu hafði fjórum löxum verið landað og menn höfðu sett í fleiri en misst.
Höskuldur Birkir Erlingsson hefur um árabil verið fréttaveita VoV frá Blöndu og hann sendi okkur eftirfarandi pistil á tíunda tímanum í morgun: „Veiði hófst í Blöndu kl.07.00 í morgun og það alveg á slaginu. Um kl.07.20, setti veiðimaðurinn Rúdólf Jósefsson í og landaði skömmu síðar
fyrsta laxi sumarsins í Dammi norður. Nánast á sama augnabliki var kominn lax á í Dammi Suður og var honum landað einnig. En fyrsta lax sumarsins veiddi Rúdólf Jósefsson og var þetta 80 cm. hrygna, tekin á maðk. Um kl.09.00 voru 4 laxar komnir á land og þar af hafði leigutaki árinnar Árni Baldursson fengið 2 laxa á Breiðunni að sunnan á fluguna Frigga. Aðstæður til veiða eru hins vegar ekki upp á sitt besta, mikið vatn í ánni og frekar litað.“