Sjóbirtingur var farinn að veiðast í Vestur Skaftafellssýslu þegar í byrjun ágúst. Sindri Hlíðar hjá Fish Partner staðfesti að þá hefðu fyrstu fiskarnir veiðst í Tungufljóti, Vatnamótunum og í lok júlí í Jónskvísl og Grenlæk. Víðar var sömu sögu að segja og er nú að bæta í.


„Þannig að hann er löngu kominn,“ sagði Sindri í stuttu spjalli við VoV. Fyrir utan svæðin sem Sindri nefndi má nefna Tungulæk og Geirlandsá þar sem veiði hefur farið vaxandi að undanförnu, enda aðal tími birtingsins að renna í hlað. Sjóbirtingsveiði hefur einnig verið góð í helstu ám hans á Suðvestur- og Vesturlandi eins og Laxá í Kjós og Laxá í Leirársveit.

Hér áður þótti það til tíðinda ef að birtingur veiddist t.d. í Tungufljóti í lok ágúst. Til marks um þá breytingu sem orðið hefur þá veiddi Maros Zatco þennan tröllvaxna birting í Syðri Hólma í Tungufljóti þann 10.ágúst. Þetta var 93cm hængur sem er eflaust með stærstu birtingum þessa síðsumars og hausts.
Yfirleitt er fiskurinn sem er að veiðast afar vænn og gleðilegt er að menn eru að setja í bústna geldfiska í bland við þá stóru. Við heyrðum í veiðimönnum í Eldvatni í gærkvöldi sem lönduðu þremur fiskum í ljósaskiptunum í Unubót, allir yfir 70 cm og sá stærsti 78 cm.










