100 cm úr Vatnsdalsá

Stórlax.

Vatnsdalsá er ein af þeim ám sem ekki hafa staðið undir væntingum í sumar, en hún er annáluð stórlaxaá og í dag(gær raunar) skilaði hún dæmigerðu Vatnsdalströlli á land.

Það var annálaðar gæd og veiðimaður, Reynir Friðriksson  sem landaði laxinum og hafði orð á því að Vatnsdalsá hefði sannarlega tekið vel á móti sér, byrjaði vaktina í veiðistaðnum Rofabakka og innan skamms var þetta ferlíki búið að hremma fluguna, „mikið ævintýri“ sagði Reynir en á FB síðu hans er falleg vídeosería af laxinum sem VoV hvetur lesendur til að kíkja á. Verulega glæsilegt tröll