105 laxa holl í Hofsá

Einn af mörgum úr Hofsá síðustu daga. Myndin er frá 6 Rivers

 

Veiðin í Hofsá og Selá hefur verið ansi hreint góð það sem af er, sérstaklega þegar liðið  hefur á sumar og slaknað aðeins á vatnselg. Þá hefur Miðfjarðará í Bakkaflóða verið miklu betri og er komin fram úr heildartölu sinni frá í fyrra. Nýlega var ríflega hundrað laxa holl í Hofsá sem telst til tíðinda á sumri sem þessu.

Það hafa verið bærilegar vikur af og til hér og þar, en hingað aðeins Rangárnar dottið inn með svona tölur. Hofsá hafði verið í góðum vexti eftir mögur þar þangað til í fyrra að hún dapraðist aftur. En nú hefur veiðin verið góð í ánni og nýafstaðið er holl sem gaf 105 laxa. Kannski spilaði inní dapurleikann í fyrra að það var við viðvarandi hitabylgja á Austurlandi og ár urðu vatnslitlar, glærar og heitar. En það var líka minna af laxi.

Laxveiðin á NA-horn­inu hef­ur annars verið betri en í öðrum lands­hlut­um og mun betri en á sama tíma í fyrra. Hofsá var í fyrra­kvöld kom­in í sam­tals 765 laxa. Til sam­an­b­urðar var heild­ar­veiðin allt sum­arið í fyrra 601 lax. Hún siglir örugglega í fjögura stafa tölu í sumar með þessu áframhaldi.

Hins vegar ber mikið af mjög smáum smálaxi. En það er ekki nýtt að „míkrólaxar“ veiðist á þeim slóðum. Það er hins vegar umhugsunarefni um hvernig ástandið er í hafinu. En veiðin er góð og það skiptir mestu máli, kannski að starfsemi 6 Rivers á þessum slóðum sé byrjuð að skila sér, nýjar reglur og nýjar áherslur.

En talandi um „míkrólaxa“ í Vopnafirði, þá rifjast upp saga af honum Vigfúsi Orrasyni sem veiddi eitt sinn míkrólax í Selá. náði vart 2 pundum. En hann merkti hann og sleppti og tveimur árum síðar veiddi hann 14 punda hrygnu með merkinu…..þannig að