Reykjadalsá í Borgarfirði
Smálax anno 2016, fallegur og vel haldinn....en lítill, rétt um 3 pund þessi lax úr Reykjadalsá í Borgarfirði. Mynd -gg.

Hreisturaflestur af smálöxum í Norðurá og Þjórsá bendir eindregið til þess að smálaxagöngur verði í góðu lagi þetta sumarið og má þar af eiðandi búast við líflegu veiðisumri, í það minnsta mun betra heldur en 2016, 2014 og 2012.

Í frétt sem birt hefur verið á vefnum hafogvatn.is og er á vegum Hafrannsóknarstofnunar(sem inniheldur nú Veiðimálastofnun) má lesa um þessar niðurstöður sem eru vægt til orða tekið gleðilegar. Í fréttinni segir m.a.:

„Undanfarin ár hafa miklar sveiflur átt sér stað í laxgengd og laxveiði i íslenskum veiðiám þar sem skipst hafa á ár með slakri veiði smálaxa (eins  ár  sjávardvöl) (2012, 2014, 2016), en á milli ár með öflugum laxagöngum og veiði (2013, 2015).

Árlegar rannsóknir hreistursýna úr Norðurá í Borgarfirði (1988-2017) og í Þjórsá á Suðurlandi (2008-2017) hafa leitt í ljós að þegar vöxtur í sjávardvöl laxins er lítill eru göngur (og veiði) smálaxa jafnframt litlar. Þetta skýrist sennilega af erfiðum sjávarskilyrðum sem virðast auka afföll í sjávardvölinni.  Þetta kom m.a. mjög greinilega fram árin 2012, 2014 og 2016, þegar smálaxagengd og veiði var almennt mjög slök, en í árum eins og 2013 og 2015 var eins árs laxinn vænni og göngur og veiði mun betri.

Nú eru fyrstu smálaxar sumarsins farnir að sýna sig á veiðislóð. Hreistursýni hafa verið tekin af smálaxi í Norðurá og í Þjórsá og mælingar á vexti þeirra sýna að sjávarvöxtur smálaxa í veiðinni 2017 er mun betri en árin 2012, 2014 og 2016, en er þó aðeins undir langtíma meðaltali í Norðurá en við meðaltal í Þjórsá.  Í Norðurárgagnaröðinni eru tölfræðilega marktæk tengsl milli vaxtar smálaxa og veiði á smálaxi í ánni og þessar niðurstöður gefa þannig vísbendingu um að smálaxagengd og veiði í Norðurá verði betri en á síðastliðnu sumri. Trúlega gildir þetta um fleiri ár á landinu a.m.k. sunnan- og vestanlands.“